Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1995, Page 62

Læknablaðið - 15.12.1995, Page 62
888 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 íðorðasafn lækna 72 Víxlaprófun Fulltrúi lyfjafyrirtækis hringdi nýverið og spurði hvort íðorðanefnd ætti í fórum sínum íslenskt heiti á þeirri aðferð lyfjaprófunar sem á ensku nefndist cross-over trial. Svo var ekki. Cross-over er ekki uppflettiorð í íðorðasafni lækna, en þar má þó finna nokkrar þýðingar á fyrirbæri sem nefnistcrossing-over. I litn- ingafræðinni er crossing-over notað um skipti samstæðra litn- inga á erfðaefni meðan á frumu- skiptingu stendur og nefnist slíkt víxliin, yfirvíxlun, litninga- víxl, víxl eða litningahlutavíxl. Hin mikla orðabók Websters gerir grein fyrir því að cross- over sé nafnorð sem notað sé um tiltekin fyrirbæri í erfða- fræði, raffræði, pípulögnum, hönnun vegamannvirkja og járnbrautarteina, keiluspili og dansi. í þessum samsetningum virðist mega nota íslensku orðin skipti, umskipti, víxl eða brú. Trial er heldur ekki að finna í íðorðasafninu, en í tiltækum ensk-íslenskum orðabókum má finna þýðingarnar prófun, til- raun, reynsla, mótlœti, raun og réttarhald. Því liggur beint við að cross-over trial nefnist víxla- prófun. Læknisfræðiorðabók Stedmans lýsir trial þannig að um sé að ræða próf eða tilraun sem fari fram við tiltekin skil- yrði. Lyfjavíxlaprófun snýst um samanburð á verkun tveggja lyfjaefna. Fyrst er annað lyfið gefið í hæfilegan tíma, en síðan er skipt um og hitt lyfið gefið á svipaðan hátt og verkun efn- anna hjá sömu einstaklingum þannig borin saman. Nafnheiti Heiti sjúkdóma og annarra læknis- og líffræðilegra fyrir- bæra eru ákaflega margvísleg. Meðal þeirra eru svonefnd eponym, en það eru heiti dregin af nöfnum, oftast nöfnum þeirra sem fyrstir lýstu fyrirbær- inu í fræðilegri grein. Eponym er ekki uppflettiorð í Iðorða- safninu en má ef til vill nefna nafnheiti. Á árum áður — og jafnvel enn — tíðkaðist slík nafngjöf og þykir fræðimönnum mikill heiður að því að nöfn þeirra verði gerð ódauðleg á þennan hátt. Nefna má Addi- son’s disease, Billroth’s opera- tion, Comby’s sign, Doppler phenomenon, Edward’s syndr- ome, Frenkel’s symptom, Gaucher cell, Henle’s gland, Johnson’s method, Koch’s bacillus, Lafora body og svo framvegis. I sumum tilvikum eru greinarhöfundar fleiri en einn og verða menn þá að deila heiðrinum með öðrum, þannig að fram koma samsett nöfn, svo sem Martin-Bell syndrome, Niemann-Pick disease og Mayer-Rokitansky-Kúster- Hauser syndrome. Deilur geta einnig risið um það hver varð fyrstur eða hverjum ber mestur heiðurinn, svo sem þegar ýmist er notað heitið Reed-Sternberg eða Sternberg-Reed cell. Nafnheiti eru oft vinsæl og mörg ná útbreiddri notkun. Þau eru hins vegar ekki gagnsæ eða lýsandi og gefa engar upplýsing- ar um fyrirbærið, sem þau eiga að tákna. Slíkt er sérstaklega óheppilegt þegar sami maður hefur gefið fleiri en einum sjúk- dómi eða kvilla nafn sitt. Mörg fyrirbæri eiga því tvö heiti, ann- ars vegar nafnheiti og hins vegar lýsandi fræðiheiti sem kemur að meira gagni í formlegu flokkun- arkerfi kvilla af líkum toga. Nefna má til dæmis Grawitz’s tumor sem einnig ber samheitið renal cell adenocarcinoma. Einn ókostur nafnheita er sá að nöfnin er að sjálfsögðu ekki hægt að þýða á önnur tungumál. Hafi nafnheiti náð verulegri út- breiðslu getur þýðing á hinu kerfisbundna samheiti því átt undir högg að sækja. Starfshóp- ur orðanefndar hefur nú tekið þá ákvörðun að amast ekki við nafnheitum. Þau verða fram- vegis skráð í íðorðasafnið til jafns við önnur samheiti. Al- menna reglan verður sú að í nafnheiti komifyrst mannsnafn- ið með sínum rétta erlenda rit- hœtti, síðan eignarfalls-„s“ án úrfellingarmerkis og loks íslensk þýðing síðasta hlutans, svo sem aðgerð, heilkenni, teikn, æxli eða sjúkdómur. Eignarfalls-„s“ verði þó ekki notað þegar er- lenda nafnið endar á „s“-i eða „s“-hljóði, né heldur þegar nafnheitið er samsett úr tveimur eða fleiri nöfnum. Þannig verði skrifað Graves sjúkdómur, Arthus fyrirbæri og Zollinger- Ellison heilkenni. Enn fremur skal sleppa eignarfalls-„s“-i þar sem rík hefð er fyrir slíku, til dæmis Gram-litun og Gram-já- kvæður. Vera má að þessar ein- földu reglur nái ekki til allra þeirra tilvika, sem fyrir kunna að koma, og því væri æskilegt að læknar kæmu frávikum á fram- færi við Orðanefnd. Jóhann Heiðar Jóhannsson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.