Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1996, Side 14

Læknablaðið - 15.03.1996, Side 14
204 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 í töflu I sést vefjaflokkun sáðkrabbamein- anna. í flestum tilvikum var um dæmigert sáð- krabbamein (classic seminoma) að ræða en í sex tilvikum afbrigði þess, oftast svokallað villivaxtarafbrigði (anaplastic seminoma). Hjá þremur sjúklingum greindist krabbamein í eista sem staðsett var í kviðarholi, önnur æxli greindust í eistum í pung. Flest æxlin greindust í hægra eista 28 (61%) og 18 í því vinstra (39%). Enginn greindist með æxli í báðum eistum og í einu tilviki vantaði upplýsingar um staðsetn- ingu. Ur sjúkraskrám fengust upplýsingar um ald- ur og greiningarár og út frá þeim upplýsingum var reiknað aldursstaðlað nýgengi á rannsókn- artímabilinu. Einnig var kannað með hvaða hætti sjúklingarnir greindust, einkenni við greiningu og hversu langur tími leið frá því fyrstu einkenni gerðu vart við sig uns greining var gerð. Farið var yfir myndgreiningaraðferð- ir sem leiddu til greiningar frumæxlis og mein- varpa, dreifingu meinvarpa til líffæra og mesta þvermál frumæxlis. Ekki reyndist unnt að styðjast við mælingar á æxlisvísum (tumor markers) þar sem þeir voru fyrst mældir reglu- bundið upp úr 1978 og eftir það voru sambæri- legar mælingar ekki alltaf gerðar. Við stigun sjúkdómsins var notuð endurbætt stigunarkerfi sem kennt er við Boden og Gibb og flestir taka mið af (8) (tafla II). Lífshorfur sjúklinganna voru síðan reiknaðar með Kapl- an-Meier aðferð (9). Um er að ræða hráar tölur (crude/absolute probability of survival) og miðast útreikningar við 31. ágúst 1994. Einnig var athugað hverjir hefðu látist fyrir þann tíma og dánarorsök fengin samkvæmt dánarvottorðum og krufningarskýrslum. Loks var kannað hvaða meðferð sjúklingarnir fengu en flestir þeirra voru greindir og meðhöndlaðir á Landspítala og Landakoti (81%), en færri á Borgarspítala (6%) og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (6%). Við tölfræðilega útreikninga var beitt kí- kvaðratsprófi og t-prófi. Breytingar á nýgengi voru reiknaðar með svokölluðu „time-trend“ prófi (10). Tölfræðileg marktækni miðast við p-gildi <0,05. Gefin eru upp meðaltöl og staðalfrávik. Niðurstöður Aldursstaðlað nýgengi sáðkrabbameins á rannsóknartímabilinu var 2,0 fyrir 100.000 karla á ári. Fjölgun verður á heildarfjölda krabbameina en á árunum 1971 til 1980 greind- ust 17 karlar og 30 á árunum 1981 til 1990. í þessum tölum er ekki tekið tillit til mannfjölda en á mynd 2 er sýnt aldursstaðlað nýgengi á fimm ára tímabilum. Nýgengi síðasta tímabils- ins (1986-1990) sker sig marktækt frá meðaltali hinna þriggja (p=0,01) en þegar litið er á tíma- bilið í heild er ekki marktæk aukning í nýgengi samkvæmt "time-trend“ prófi (p=0,06). Table I. Histopathologic types for seminomas diagnosed in Iceland from 1971-1990. Type Number Classic 41 Anaplastic 4 Spermatocytic 1 Intratubuiar 1 Table II. The staging system of Boden og Gibb for testicular cancer (8). Stage I: Tumour limited to testis Stage II: Retroperitoneal node metastasis A: less than 5 cm B: more than 5 cm Stage III: Supra-diaphragmatic nodal metastasis Stage IV: Extra-nodal metastasis. Table III. Presenting symptoms ofmen noma in Iceland 1971-1990 (n=45)*. diagnosed witl i semi- N Testicular mass/swelling 44 (98) Testicular pain 19 (42) Symptoms due to metastasis 5 (11) *Patients can have more than one symptom. Table IV: Investigations used for staging seminomas diagnosed in Iceland in two 10-year periods from 1971-1990 (n=47). 1971-80 1981-90 1971-90 N N = 17 (%) N N=30 (%) N (%> Chest X-ray 17 (100) 29 (97) 46 (98) Lymphangiogr. 7 (41) 18 (60) 25 (53) Abdominal CT 0 (0) 24 (80) 24 (51) Abdominal US 0 (0) 20 (67) 20 (43) Urography 5 (29) 3 (10) 8 (17) Expl. laparotomy 2 (12) 1 (3) 3 (6)

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.