Læknablaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 71
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
255
íbúðaskipti
Franskur læknir, Jean Vion Michel, hefur
áhuga á íbúðaskiptum við íslenska fjöl-
skyldu í sumar. Um er að ræða tímabilið
28. júlí til 11. ágúst.
Til afnota er nýtískuleg íbúð með öllum
þægindum sem gæti hentað hjónum með
eitt til tvö börn. Neðanjarðarstöð er 50 m
frá íbúðinni. Heimilsfangið er 17 rue Pierre
Lescot, París 1er. Áhugasamir skrifi eða
hafi samband í síma 00 33 1 40 26 47 12.
Til sölu
Til sölu spjaldskrárkerfi fyrir PC-tölvur.
Auðvelt í notkun og hentar vel fyrir stofur.
Upplýsingar í síma 553 9032.
Tennismót íslenskra lækna
Fyrsta tennismót íslenskra lækna var haldið á
vegum Austurbakka í Tennishöllinni í Kópavogi
3.-4. febrúar síðastliðinn. Tólf læknar skráðu sig
til keppni.
Austurbakki gaf vegleg verðlaun og farandbikar
og er gert ráð fyrir að þetta verði árviss atburður.
Stefán Björnsson varð í fyrsta sæti, Einar Thor-
oddsen í öðru sæti og Börkur Aðalsteinsson í
þriðja sæti.
Þátttakendur á fyrsta tennismóti íslenskra lækna. Fremri röð frá vinstri Haraldur Sigurðsson,
Stefán Björnsson, Einar Thoroddsen og Björn Árdal. Aftari röð Leifur Dungal, Þórólfur Guðna-
son, Sigurður Björnsson, Magnús Ólafsson, Börkur Aðalsteinsson og Páll Stefánsson.