Læknablaðið - 15.03.1996, Blaðsíða 50
236
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
íðorðasafn
Ný útgáfa
í lok árs 1995 komu út þrjú
orðasöfn á vegum Orðabókar-
sjóðs læknafélaganna. Þetta eru
bækurnar Líffæraheiti, Vefja-
fræðiheiti og Fósturfræðiheiti,
en þær eru allar íslenskar þýð-
ingar á alþjóðlegum útgáfum til-
svarandi fræðiheita (Nomina
Anatomica, Nomina Histolog-
ica og Nomina Embryologica).
í formálum bókanna kemur
fram að unnið var að þýðingun-
um á árunum 1989 til 1993,
þannig að um tvö ár hefur tekið
að koma útgáfunni í kring.
Meðlimir orðanefndar varpa
því öndinni léttar og segja ein-
um rómi: Loksins! Við þýðingu
á líffæraheitunum var að sjálf-
sögðu stuðst við útgáfu prófess-
ors Jóns Steffensen frá 1972 á
Alþjóðlegum og íslenskum líf-
færaheitum Guðmundar Hann-
essonar frá 1941. Við þýðingu á
vefjafræði- og fósturfræðiheit-
unum var hins vegar ekki um
eldri útgáfur að ræða. Það er
merk nýjung í þessum íslensku
bókum, að teknar hafa verið
saman latnesk-íslenskar og ís-
lensk-latneskar orðaskrár með
númerakerfi sem vísar lesend-
um inn í kerfisraðaða nafna-
hlutann. Orðaskrárnar eru í
stafrófsröð og gera bækurnar
mun nytsamlegri en ella hefði
orðið.
Fyrirspurnir
Ýmsar fyrirspurnir um ís-
lensk íðorð og þýðingar á er-
lendum fræðiheitum hafa borist
undirrituðum undanfarnar vik-
ur og mánuði. I flestum tilvik-
um er fyrirspurnunum svarað
símleiðis eftir bestu getu og þá
höfð hliðsjón af íðorðasafninu.
Fyrirspurnir eru alltaf velkomn-
ar og koma ótvírætt að gagni í
lækna 75
íðorðastarfseminni. Þær eru oft
mikilvæg vísbending um íðorð
sem vantar í safnið og að auki
stundum svo almenns eðlis að
þær gefa tilefni til umræðu í íð-
orðapistlunum. Að sjálfsögðu
er ekki alltaf hægt að svara að
bragði með nýrri snilldarþýð-
ingu á erfiðu orði eða hugtaki,
en oft fer þó af stað hugsana-
ferill sem að lokum leiðir til við-
unandi lausnar. Það verður ekki
of oft ítrekað að ný erlend
fræðiorð eru kærkomin viðbót í
safnið og sama gildir um nýjar
tillögur að íslenskum þýðing-
um. Orðasöfnun er einmitt mik-
ilvægur þáttur í starfseminni og
verður ekki framkvæmd með
því einu að leita í erlendum
læknisfræðiorðabókum. Mörg
af þeim fræðiorðum sem eru í
daglegri notkun, sérstaklega
heiti á nýjum aðferðum og
áhöldum, skila sér seint inn í
stóru orðabækurnar. Læknar
eru því beðnir um að hika ekki
við að leita til undirritaðs eða
einhvers annars af orðanefndar-
mönnum þegar þörf er á aðstoð
við íslenska íðorðasmíð.
Solidus
Latneska lýsingarorðið soli-
dus hefur verið tekið upp í
ensku í styttri mynd, solid. I
hinni miklu fjölfræðilegu orða-
bók Websters eru gefnar 29
skýringar á merkingu og notkun
þessa orðs og kennir þar ýmissa
grasa. íðorðasafn lækna gefur
þó einungis þýðingarnar þéttur,
sterkur, traustur. I læknisfræði-
legum samsetningum kemur
orðið meðal annars fyrir þegar
verið er að lýsa vefjum, líffær-
um eða æxlum sem eru gegnheil
og innihalda ekki holrými af
neinu tagi. Sú venja er hins veg-
ar að skapast í sumum greinum,
að æxli önnur en hvítblæði séu
nefnd solid tumors á ensku og
föst æxli á íslensku. Gildir þá
einu hvort „föstu æxlin" eru
gegnheil eða ekki. Þessu á und-
irritaður erfitt með að venjast
og er það vafalaust þröngsýni af
hans hálfu að láta sér koma í
hug að spyrja hvort þá séu einn-
ig til „laus æxli“. Rétt er því að
minna á þá hliðstæðu, að nafn-
orðið solid er notað í eðlisfræði
um efni sem eru í föstu formi,
ekki í vökvaformi eða í loft-
kenndu ástandi, og eru þau
nefnd föst efni.
Að meðhöndla
Glöggur hlustandi vakti at-
hygli á sérkennilegri notkun
sagnarinnar að meðhöndla í út-
varpsviðtali um daginn. Fram
hefði komið að tiltekna sýkla
ætti að meðhöndla með sýkla-
lyfjum. Þótti honum rangt með
farið, því að ætlunin hefði
greinilega verið sú að sjúklingar
fengju lyfjameðferð sem dræpi
umrædda sýkla. Sögnin að með-
höndla væri að vísu stundum
notuð í daglegu tali, en þá ein-
ungis þannig að sjúklingar væru
meðhöndlaðir. Algengasta
merking sagnarinnar að með-
höndla væri sú, samkvæmt
orðabók Máls og menningar, að
fara vel eða illa með einhvern,
en það ætti ekki alls kostar við
um sýkladráp. Undirritaður
leitaði þá álits hjá Baldri Jóns-
syni, forstöðumanni íslenskrar
málstöðvar, og taldi hann notk-
un sagnarinnar að meðhöndla
einnig vera óheppilega í rnerk-
ingunni að veita meðferð.
Jóhann Heiðar Jóhannsson