Læknablaðið - 15.03.1996, Síða 36
þægilega
spjaldið!
Trinovunr — Reynslan tryggir gæðin
TRINOVUM TOFLUR; G 03 A A 05 R 0
Hver pakkning inniheldur 7 hvítar, 7 Ijósferskjulitar og 7 ferskjulitar töflur (7 grænar töflur). Hver hvít tafla inniheldur: Norethisteronum INN 0,5 mg, Ethinylestradiolum
INN 35 míkróg. Hver Ijósferskjulit tafla inniheldur: Norethisteronum INN 0,75 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. Hver ferskjulit tafla inniheldur:
Norethisteronum INN 1 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. (Hver græn tafla inniheldur: Lactosum 93,5 mg). Eiginleikar: Getnaðarvarnatöflur sem eru blanda
af östrógeni og gestageni. Gestagenmagnið er aukiö smám saman. Lyfið telst til lágskammta getnaðarvarnataflna. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi og
helmingunartími þeirra í blóði er 6-8 klst. Þau umbrotna í lifur og skiljast út með þvagi og saur. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur
storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill-eöa góðkynja
sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Væaar: Bólur (acne),
húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, mígreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing,
eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld.
Varúð: Konum sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öörum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á
virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbítúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni
getnaöarvarnataflna séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns,
blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á1. degi tíðablæðinga og er þá tekin ein tafla á dag í 21 dag, gert hlé í 7 daga og byrjað aftur á sama vikudegi og
síðast. (Trinovum 28 skulu teknar samfleytt án þess að hlé sé gert á töflutöku, 7 síðustu töflurnar eru án virkra efna og eru grænar). Fyrst eru teknar 7 hvítar töflur, þá
7 Ijósferskjulitar töflur, 7 ferskjulitar töflur (loks 7 grænar töflur).
Pakkningar og verð 1.des.1995: 21stk. x 3 (þynnupakkað) - kr. 1106 28 stk. x 3 (þynnupakkað) - kr. 1106.
Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð.