Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1996, Síða 40

Læknablaðið - 15.03.1996, Síða 40
228 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 var leitast við að fá svör við því hvort rétt hafi verið staðið að greiningu sjúkdómsins með því að byggja hana á sögu og skoðun fremur en ítarlegum rannsóknum. Efniviður og aðferðir Egilsstaðalæknishérað nær yfir Fljótsdals- hérað og Borgarfjörð eystri og býr rúmur helmingur íbúa í þéttbýlinu á Egilsstöðum og í Fellabæ. A svæðinu er ein heilsugæslustöð í starfstengslum við sjúkrahús/hjúkrunarheim- ili. Þrír heilsugæslulæknar starfa að jafnaði á svæðinu. Öll samskipti einstaklinga við stöðina eru tölvuskráð samkvæmt vandaliðuðu sjúkra- skrárkerfi sem nefnt hefur verið Egilsstaða- kerfið. íbúatalan árið 1982 var 2831 en 3101 árið 1994. Árið 1982 höfðu 82 sjúklingar iðraólgu sem fasta sjúkdómsgreiningu (558ICCH), það merkir að greiningin var skráð sem viðvarandi vandamál í sjúkraskrá Heilsugæslustöðvarinn- ar á Egilsstöðum (5,6). Einn sjúklingur var ranglega skráður og því felldur út. Rannsóknin sem hér er greint frá kannaði afdrif þessara sjúklinga 12 árum síðar og nær yfir 863,3 per- sónuár. Sjúkraskrár 11 sjúklinga sem höfðu sjúkdómsgreininguna árið 1982 og höfðu látist á tímabilinu voru athugaðar með tilliti til dán- armeina og meltingarfærasjúkdóma sem upp- götvast höfðu eftir 1982. Upplýsinga var leitað um hina 70 með heimsendum spurningalista. Auk þess voru skoðaðar sjúkraskrár þeirra sjúklinga sem sögðust hafa greinst með annan meltingarfærasjúkdóm á tímabilinu 1982-1994 (þó einungis þeirra sem enn bjuggu í Egils- staðahéraði 1994). Niðurstöður Ellefu sjúklingar létust á tímabilinu. Dánar- mein tveggja þeirra voru meltingarfærasjúk- dómar. Hjá fyrri sjúklingnum sem lést árið 1985 var dánarorsökin gegnumþrengjandi magasár, en lifrarkrabbamein hjá þeim síðari sem lést árið 1986. Af þeim 70 sjúklingum sem fengu sendan spurningalista svöruðu 53 (76%). Þeir voru á aldrinum 31-91 árs en meðalaldur var 52 ára. Konur voru 38 en karlar 15 talsins. Sama kynja- skipting var í hópnum sem ekki svaraði en meðalaldur þar 45,5 ár. í hópnum sem svaraði voru 24,5% brottfluttir en 21% í hinum hópn- um. Fyrir utan meðalaldur eru hóparnir mjög sambærilegir og brottfallið ætti því ekki að hafa umtalsverð áhrif á niðurstöðurnar. Fig. Symptom prevalence in 53 patients with irrrittble syn- drome. Table. Symptoms in 53patients with irritable bowelsyndrome 1982-1994 Symptom Number (%) Abdominal distension 33 (62) Flatulence 41 (77) Constipation and/or diarrhea 38 (71) Heartburn 20 (38) Á mynd sést hvort og hve oft bar á einkenn- um iðraólgu. Rúmur þriðjungur sjúklinga hafði óþægindi einu sinni í mánuði eða oftar. Vindgangur og hægðatregða voru algeng- ustu einkennin (sjá töflu). Fæðuóþol fannst hjá 38%. Töldu 14% sjúklinga sig hafa óþol fyrir mjólk, 14% fyrir feitmeti, 14% fyrir krydduð- um mat og 9% fyrir brauði. Úr hópi hinna aðspurðu töldu 17 (32%) sig hafa greinst með annan meltingarsjúkdóm. Ellefu sjúklingar nefndu í þessu sambandi magabólgur og þrír þindarslit. Þegar skoðaðar voru sjúkraskrár þeirra 12 sjúklinga sem ekki voru brottfluttir úr héraðinu fékkst staðfesting á þessum sjúkdómsgreiningum hjá fjórum (33%). Einn þessara sjúklinga hafði greinst með krabbamein í ristli 1989. Þriðjungur sjúklinganna kvaðst aldrei hafa leitað til læknis á tímabilinu vegna sjúkdóms- ins. Af hinum hafði þriðjungur leitað eingöngu til heilsugæslulæknis og 5% sjúklinganna höfðu einungis leitað til sérfræðings. Fram kom að 58% sjúklinga nota lyf við iðraólgunni og 17% höfðu verið frá vinnu vegna sjúkdómsins. Hjá 34% kom fram fjöl- skyldusaga unr iðraólgu.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.