Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1996, Page 58

Læknablaðið - 15.03.1996, Page 58
35 oplosclige tablettcr Zoviplus 800mg acidovirum Vnr 10 68 64 ÖRUGGT, ÁHRIFARÍKT, ÞÆGILEGT LAUSNARTÚFLUR TILINNTÖKU - sem má gleipa heilar eða leysa upp i 1/2 glasi af vatni ÁBENDING: RISTILL [ HERPES ZOSTER 1: Zoviplus (acíkióvír) töflur 800 mg 5 sinnum á dag í 7 daga - marktœk minnkun á bráðum einkennum og sárið grœr fyrr (1) - marktœk minnkun á langvinnum ristiltengdum verkjum ( 2,4 ) - marktœk minnkun á alvarlegum augnkvillum (3,4) - betri hoifur varðandi ristiltengda lömun (5) Wellcome tilvitnanir: 1. Morton, PNewZealand J Med.,1989:Vol. 102; 93-95 2. Crooks, RJ.Scan.J.Inf.Dis.1992: Supl. 80, 62-69 3. Cobo, M.AM.J. Med. 1988;Vol.85/Supl. 2A); 90-93 4. Mc Gill, JI. BMJ. 1994;Vol. 309;1124 Stefán Thorarenwn 5. Lyngberg.K Ugeskr. Lœger, 1990:152/17;12-14 Zoviplus (Wellcome, 930149).LAUSNARTÖFLUR TIL INNTÖKU; J 05 A B 01 R E. Hver lausnartafla til inntöku inniheldur: Aciclovirum INN 200 mg, 400 mg eða 800 mg.Eiginleikar: Acíklóvír er gúanínnúkleósíð, sem eftir fosfórýleringu í veirusýktum frumum hindrar DNA-nýmyndun frumunnar. Lyfið frásogast um 20% frá meltingarvegi. Helmingunartími í blóði er um 3 klst. Þéttni í heilamænuvökva er um helmingur af blóðþéttni. Um 75% umbrotnar í óvirk efni. Ábendingar: Herpes simplex sýkingar í húð, þ.m.t. herpes genitalis. Langtíma bælimeðferð gegn slendurteknum herpes simplex sýkingum hjá fólki með eðlilegt ónæmiskerfi. Alvarlegar herpes zoster sýkingar, bæði hjá ónæmisbældum og hjá sjúklingum með eðlilegt ónæmiskerfi. Hlaupabóla, ef búist er við alvarlegri sýkingu, einkum hjá fullorðnum og ónæmisbældum sjúklingum. Til að fyrirbyggja Herpes simplex sýkingu hjá ónæmisbældum sjúklingum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf: Fósturskemmandi áhrif hafa sést hjá rottum eftir gjöf mjög hárra skammta. Lyfið á því ekki að nota hjá barnshafandi konum nema brýna nauðsyn beri til. Ekki er vitað hvort lyfið fer yfir fylgju eða útskilst í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Nýrnabilun hefur sést. Ógleði, uppköst, hækkun á lifrarenzýmum og fækkun á blóðfrumum. Útbrot og hiti hafa komið fyrir. Einkennum frá miðtaugakerfi svo sem rugli, skjálfta og breytingum á heilalínuriti hefur verið lýst meðan á notkun lyfsins stendur. Milliverkanir: Próbenecíð lengir helmingunartlma lyfsins. Skammtastærðir handa fullorðnum: Herpes simplex sýkingar íhúð: 200 mg á 4 klst. fresti að deginum til, þ.e.a.s. fimm sinnum á dag. Hefja ber meðferð sem allra fyrst eftir að einkenni koma fram. Bælimeðferð hjá fullorðnum: 800 mg á dag gefið (2-3 skömmtum. Þennan skammt má reyna að lækka smám saman (400 mg á dag, gefið í 2-3 skömmtum. Ráðlegt er að hætta meðferð með 6-12 mánaða millibili, þar sem sjúkdómsmyndin getur breyst og þörf fyrir bælimeðferð horfin. Við nýrnabilun (kreatínín klerans <10 ml/mín.): 200 mg tvisvar sinnum á dag. Alvarlegar herpes zoster sýkingar: 800 mg 5 sinnum á sólarhring í eina viku gefið sem töflur eða mixtúra. Hlaupabóla: 800 mg 4-5 sinnum á sólarhring. Skammtastærðir handa börnum: Fyrirbyggjandi meðferð gegn herpes simplex sýkingum hjá sjúklingum með ónæmisbælingu: Börn yfir 2 ára: 200 mg fjórum sinnum á dag. Börn 3 mánaða til 2 ára: 100 mg fjórum sinnum daglega. Lyfið skal gefa á 4 tíma fresti meðan barnið er vakandi. Alvarlegar herpes simplex sýkingar í húð og slímhúð: Börn 3 mánaða til 2 ára: 100 mg fimm sinnum á dag. Böm eldri en 2 ára: 200 mg fimm sinnum á dag. Hlaupabóla (sé búist við alvarlegri sýkingu): Börn 2-12 ára: 20 mg/kg fjórum sinnum á dag, hámarksskammtur 800 mg/kg fjórum sinnum á dag. Framamgreinda skammta þarf að lækka við skerta nýrnastarfsemi. Athugið: Lausnartöflurnar má gleypa heilar eða leysa þær upp í 1/2 glasi af vatni fyrir inntöku. Pakkningar: Lausnartöflur til inntöku 200 mg: 25 stk.(þynnupakkað) - verð kr. 4.813,-. Lausnartöflur til inntöku 400 mg: 56 stk.(þynnupakkað) - verð kr. 16.662,-. Lausnartöflur til inntöku 800 mg: 35 stk.(þynnupakkað) - verð kr. 18.876,-. Hver pakkning lyfsins skal merkt: „Töflurnar má gleypa heilar eða leysa þær upp í 1/2 glasi af vatni fyrir inntöku.“

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.