Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1996, Page 25

Læknablaðið - 15.08.1996, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 571 ið fyrir, þarfnast hjarta og lungnaígræðslu sem er flóknari og áhættusamari aðgerð (sjá síðar). Mikilvægt er að meta samdráttarhæfni hjarta- vöðvans og hjartaútfall en niðurstöður þess geta verið hjálplegar upplýsingar við tímasetn- ingu aðgerðarinnar. Aðrir þættir í athugun á væntanlegum hjartaþegum snúa að rannsókn- um á öðrum líffærum, stöðu ónæmiskerfisins og mögulegum sýkingum. Sálrænt ástand og félagslegt umhverfi tilvonandi hjartaþega er einnig mjög mikilvægt. Hjarta líffæragjafans er athugað með hjarta- ómun fyrir líffæraflutninginn og góð verkun líffærisins án aðstoðar samdráttarhvetjandi lyfja er venjulega skilyrði fyrir líffæragjöf. Blóðflokkun og stærð líffærisins eru í raun einu aðrir þættirnir sem athuga þarf fyrir sjálfa ígræðsluna. Hjartaígræðslan Hjartaígræðslan sjálf er almennt talin frekar auðveld hjartaaðgerð samanborið við margar flóknar aðgerðir sem framkvæmdar eru á börn- um með hjartagalla. Hjartaígræðslu er hægt að framkvæma í nær öllum gerðum af meðfædd- um hjartagöllum þar sem staðsetning ósæðar- innar, lungnaslagæðinnar og vinstri gáttar er nær alltaf hin sama (10). Hjarta líffæragjafans er venjulega ekki utan líkama lengur en fjórar til sex klukkustundir eftir að það hefur verið tekið út úr líkama gjafans og þann tíma er það geymt í sérstakri upplausn. Með sjúklinginn tengdan hjarta- og lungnavél er hjarta líffæraþegans tekið út og hið nýja hjarta er grætt í. Ósæð og lungnaslag- æð hins nýja líffæris eru tengdar samsvarandi æðum og vinstri og hægri gátt eru tengdar gátt- um líffæraþegans. Hjartað byrjar svo að slá í hinu nýja umhverfi þegar líkamshita hefur verið náð meðan líkaminn er vaninn af hjarta- og lungnavélinni. Eftir aðgerðina er oftast tímabundin þörf á samdráttarhvetjandi lyfjum enda minniháttar vanvirkni hjartavöðvans algeng strax eftir að- gerðina. Vanvirknin er talin vera vegna blóð- þurrðarskemmda og skorts á hvatningu frá ósjálfráða taugakerfinu (11). Hvað varðar gjör- gæslumeðferð eftir líffæraflutninginn er hún í öllum meginatriðum svipuð gjörgæslumeðferð eftir opnar hjartaaðgerðir ef frá er talin ónæm- isbælingin. Bæling á ónæmiskerfinu þarf að byrja um leið og hið nýja líffæri er grætt í og samanstendur hún í upphafi af háum skömmt- um af steróíðum ásamt öðrum sértækum ónæmisbælandi lyfjum. Lífeðlisfræði hins ígrædda líffæris Þar sem hluti hægri gáttar er skilinn eftir við líffæraflutning eru í raun tveir hlutar af hægri gátt til staðar eftir ígræðsluna. Þar með eru líka tveir sinus hnútar óháðir hvor öðrum og má greina það á hjartalínuriti hjartaþega. Hægra greinrof er einnig mjög algengt að sjá á hjarta- línuriti hjartaþega (8). Hið nýja hjarta hefur enga beina tengingu við ósjálfráða taugakerfið þar sem skorið var á taugar við ígræðsluna (de-inervation). Skortur á boðum frá Vagus tauginni veldur óvenju hröðum grunn hjart- slætti og einnig er breytt svörun hjartsláttar við áreynslu. Vöntun á taugaboðum veldur því einnig að engin sársaukaboð eru samfara blóð- þurrð í hjartavöðva. Þótt ótrúlegt sé, virðist sem áðurnefnd taugatenging eða hluti hennar geti endunýjast (12). Þrátt fyrir þessa umbreyt- ingu á lífeðlisfræðilegri svörun og hegðun hins nýja hjarta er verkun þess undir flestum kring- umstæðum eðlileg með eðlilegt hjartaútfall og samdráttarhæfni. Eftirlit og meðferð hjartaþega Eftirlit hjartaþega er sérhæft og snýr einkum að því að fylgjast með mögulegri höfnun á hinu nýja líffæri, möguleika á sýkingu eða auka- verkunum frá ónæmisbælandi lyfjum. Almenn skoðun, blóðrannsóknir og ómskoðun á hjarta eru framkvæmdar mánaðarlega fyrst eftir ígræðsluna og á hálfsárs fresti eftir fyrsta árið. Mikilvægt er að fylgjast náið með stöðu ónæm- iskerfisins, nýjum sýkingum eða uppvakningu veira (Cýtómegaló vírus, Ebstein Barr-veirur) hugsanlega frá hinu nýja líffæri. Einn flóknasti þátturinn í eftirliti hjartaþega er að fylgjast með höfnun í hinu nýja líffæri. Þrátt fyrir miklar rannsóknir á þessu sviði er slíkt best gert með vefjabita (endomyocardial biopsy) frá hjartanu sjálfu. Gerð er hjarta- þræðing á venjubundinn hátt og þar til gerð löng töng er þrædd inní hægri slegil þar sem vefjabitarnir eru teknir. Þótt slíkt megi fram- kvæma með lítilli áhættu (13) reynir þetta á börnin og aðstandendur þeirra enda er þetta aðgerð sem ekki er sársaukalaus. Vefjabitar úr hjartanu eru venjulega teknir með sex mánaða millibili, örar fyrst eftir ígræðslu eða ef vanda- mál eru, en sjaldnar þegar lengra líður frá ígræðslunni.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.