Læknablaðið - 15.08.1996, Side 32
578
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
þriðja hópnum eru þeir sem vinna við fram-
leiðslu á vörum úr latexi. Hér á landi mætti
nefna starfsfólk á hjólbarðaverkstæðum.
Líkurnar eru mestar á latexofnæmi sé fólk í
einhverjum áhættuhópanna og auk þess með
bráðaofnæmi af öðrum toga.
Um helmingur þeirra sem hafa jákvæð lat-
expróf eru með einkenni um latexofnæmi.
Einkennin fara eftir því frá hvaða líffæri þau
eru og hvað ofnæmið er sterkt. Við beina
snertingu við hanska, plástra, gúmmíblöðrur,
smokka og aðra hluti úr gúmmíi kemur kláði,
roði og bjúgur í húðina. Kláði og roði í augum
eða bjúgur í augnlokum eru næstalgengustu
einkennin. Þá koma einkenni frá nefi; hnerrar,
nefrennsli, nefstíflur. Sjaldgæfari en þeim mun
alvarlegri eru einkenni frá munni, endaþarmi,
leggöngum, sem og astmi, ofsakláði, ofsabjúg-
ur, uppköst, niðurgangur og ofnæmislost.
Gúmmíhanskar eru húðaðir að innan með
kornsterkju til að auðveldara sé komast í þá.
Kornsterkjan dregur í sig ofnæmisvaka úr lat-
exi. Einkenni frá nefi, augum og lungum or-
sakast oft af latexögnum, sem berast með
kornsterkju úr hönskunum og dreifist út í loftið
ef þeir eru hristir.
Bráðaofnæmi fyrir latexi er alvarlegra en
flest annað ofnæmi. Þetta er vegna mikillar
notkunar á gúmmíi á sjúkrahúsum og öðrum
heilbrigðisstofnunum. Sjúklingar með ógreint
latexofnæmi eru því í bráðri hættu ef þeir verða
fyrir slysi eða veikjast.
Á árunum 1988 til 1992 var tilkynnt um meira
en 1000 tilfelli af alvarlegum ofnæmisviðbrögð-
um af latexi til Food and Drug Administration
(FDA) íBandaríkjunum. Af þeim vorul5 ban-
væn (10). Líkurnar á hættulegum ofnæmisvið-
brögðum eru mestar við aðgerðir, ef latex
kemur í snertingu við slímhúð.
Latexofnæmi á íslandi
Um 30 einstaklingar hafa greinst með latex-
ofnæmi á göngudeild Vífilsstaða. Af 25 sjúk-
lingum, þar sem sjúkraskrár eru tiltækar, eru
20 konur (80%). Aldur sjúklinganna var á bil-
inu fimm til 48 ár, þegar ofnæmið var greint.
Af 23 sjúklingum, þar sem upplýsingar voru
fyrir hendi, höfðu 70% annað bráðaofnæmi.
Hjá tveimur einstaklingum vantaði upplýsing-
ar.
Það var ekki prófað sérstaklega fyrir fæðu-
tegundum eða fyrir snertiofnæmi gegn gúmmíi
nema sjúkrasagan gæfi tilefni til. Þrír sjúkling-
Table I. Symploms in 23 patients with latex allergy.
Symptoms %
Contact urticaria 77
Conjunctivitis 50
Rhinitis 36
Asthma 18
Urticaria/angioedema 41
ar höfðu ofnæmi fyrir banönum og þrír höfðu
ofnæmi fyrir kiwi. Tveir sjúklingar voru með
snertiofnæmi fyrir efnum í gúmmíi samkvæmt
niðurstöðum úr plástraprófi með TRUE
TEST®. Tafla I sýnir einkenni af latexofnæm-
inu. Tuttugu og tveir einstaklingar höfðu ein-
kenni en einn var einkennalaus. Sá einkenna-
lausi var í áhættuhópi og var því prófaður.
Fjórir höfðu sennilega fengið latexofnæmi
vegna endurtekinna skurðaðgerða, hjá 13 var
líklegasta orsökin notkun á hönskum, einn
fékk það við vinnu í sjóklæðagerð og tveir af
gúmmíblöðrum. Hjá þremur var ekki hægt að
benda á neina sennilega orsök fyrir ofnæminu.
Tveir hjúkrunarfræðingar og einn skurðlæknir
voru í hópnum; meðal annars sá einstaklingur
sem hefur alvarlegustu einkennin. Tveir sjúk-
lingar voru með meðfædda þvagfæragalla, einn
með samvaxna fingur og einn með beinhimnu-
bólgu sem leiddi til endurtekinna skurðað-
gerða.
Engar kannanir hafa verið gerðar á algengi
latexofnæmis á íslandi.
Hvernig er Iatexofnæmi greint?
Oft er auðvelt að tengja latexofnæmi við
einkennin, til dæmis þegar gúmmíhanskar
valda snertiútbrotum (contact urticaria).
Tengsl annarra einkenna við latex geta hins
vegar reynst erfiðari í greiningu.
Kláði er eitt helsta einkenni bráðaofnæmis.
Því nudda menn stundum augnlokin með
gúmmíhanska á hendi. Það getur kallað fram
gríðarlegan bjúg í augnslímhúð eða augnloki
(mynd 1).
Ofsabjúgur í vörum og munni eftir tannvið-
gerðir, eða bjúgur á kynfærum og endaþarmi
eftir skoðanir hjá kvensjúkdómalækni, eru
einkenni sem strax vekja grun um latexof-
næmi. Óvænt áföll við svæfingar og aðgerðir,
til dæmis útbrot, astmi eða blóðþrýstingsfall
geta einnig verið vegna latexofnæmis.
Við grun um latexofnæmi á að gera húðpróf
með sérstökum ofnæmisvökum. Ef prófið er
neikvætt þrátt fyrir sterkan grun má gera þol-