Læknablaðið - 15.08.1996, Page 38
584
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Uppkast að samningi um
mannréttindi og líflæknisfræði
Samið á vegum Evrópuráðsins
FORMÁLI
Aðildarríki Evrópuráðsins, önnur ríki og
Evrópusambandið er undirrita samning þenn-
an,
hafa í huga Almennu yfirlýsinguna um
mannréttindi, sem Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna gaf út 10. desember 1948,
hafa í huga Sáttmálann um vernd mannrétt-
inda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950,
hafa í huga Félagsmálasáttmála Evrópu frá
18. október 1961,
hafa í huga Alþjóðasamninginn um borgara-
leg og stjórnmálaleg réttindi og Alþjóðasamn-
inginn um efnahagsleg, félagsleg og menning-
arleg réttindi frá 16. desember 1966,
hafa í huga Samninginn um vernd einstak-
linga varðandi vélræna vinnslu persónuupplýs-
inga frá 28. janúar 1981,
hafa einnig í huga Samninginn um réttindi
barnsins frá 20. nóvember 1989,
álíta að markmið Evrópuráðsins sé að ná
fram meiri einingu meðal aðildarríkjanna og
að ein af aðferðunum, sem beitt skal til þess að
ná þessu marki, er viðhald og efling mannrétt-
inda og mannfrelsis;
eru meðvita um hröðun þróunar í líffræði og
læknisfræði,
eru sannfærð um nauðsyn þess, að virða
mannveruna bæði sem einstakling og hluta
mannkyns og viðurkenna mikilvægi þess, að
tryggja reisn mannverunnar,
eru meðvita um, að misnotkun líffræði og
læknisfræði getur leitt til gjörða er stofna
mannlegri reisn í hættu,
staðfesta, að framfarir í líffræði og læknis-
fræði skuli notaðar til hagsbóta fyrir núlifandi
og síðari kynslóðir,
leggja áherzlu á þörfina fyrir alþjóðlega sam-
vinnu, í því skyni að allt mannkyn fái notið
hagsbótanna af líffræði og læknisfræði,
viðurkenna mikilvægi þess, að efld sé al-
menn umræða um þær spurningar, sem beiting
líffræði og læknisfræði vekja og um það
hvernig við þeim skuli brugðist,
æskja þess, að minna alla samfélagsþegna á
réttindi þeirra og skyldur,
taka mið af starfsemi ráðgjafarþingsins á
þessu sviði og þar með talinni Ályktun 1160
(1991) um undirbúning samnings um lífsið-
fræði,
eru staðráðin í að gera hverjar þær ráðstaf-
anir, sem nauðsynlegar eru, til þess að tryggja
mannlega reisn og frumréttindi og frelsi ein-
staklinga, að því er varðar beitingu líffræði og
læknisfræði,
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
I. Almenn ákvæði
Fyrsta grein (Stefna og markmið)
Aðilar þessa samnings skulu vernda reisn og
auðkenni allra mannvera og tryggja hverjum
og einum án mismununar virðingu fyrir ósk-
ertu ástandi þeirra og öðrum réttindum og
mannfrelsi, að því er varðar beitingu líffræði
og læknisfræði.
Önnur grein (Mannveran sett ofar öðru)
Hagsmunir og velferð mannverunnar skulu
vera fremri eiginhagsmunum samfélags og vís-
inda.
Þriðja grein (Óvilhallur aðgangur að heilbrigð-
isþjónustu)
Aðilar samningsins skulu gera viðeigandi ráð-
stafanir þar sem lögsaga þeirra nær til, í því
skyni að búa í haginn fyrir óvilhallan aðgang að
heilbrigðisþjónustu og skal tekið mið af heil-
brigðisþörfum og tiltækum úrræðum.
Fjórða grein (Starfsstaðlar)
Sérhverri íhlutun á heilbrigðissviðinu, þar með
taldar vísindarannsóknir, skal beitt samkvæmt
viðeigandi starfsskyldum og starfsstöðlum.
II. Samþykki
Fimmta grein (Almenn regla)
Ihlutun á heilbrigðissviðinu má því aðeins