Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 48

Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 48
594 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Umræða og fréttir Ný spá um atvinnumarkað íslenskra lækna: Jafnvægi til 2015 en eftir það..?! Nýlega lagði vinnuhópur á veg- um norrænu læknafélaganna, svokallaður SNAPS-hópur fram nýja spá um atvinnumark- að lækna á Norðurlöndunum. Spáin var kynnt á fundi Nor- ræna læknaráðsins, sem nýlega var haldinn í Helsinki, en ráðið er hinn formlegi samstarfsvett- vangur norrænu læknafélag- anna. Ráðið fól starfshópnum fyrir tveimur árum m.a. að gera sem gleggstar spár um stöðu at- vinnumarkaðar lækna á Norð- urlöndunum. Slíkar spár hafa verið gerðar reglulega og var þetta hin níunda. Er í henni lögð fram spá um áætlað fram- boð af læknum fram til 2015 og áætlaða eftirspurn fram til 2010. Fyrir hönd LÍ hefur Sveinn Magnússon varaformaður setið í vinnuhópnum og var talsmað- ur hans í Helsinki. Ein aðal ástæða þess að þessi vinna var sett af stað í upphafi var að hafa sem ljósasta mynd af atvinnumarkaðnum með það fyrir augum að stuðla að sem bestu jafnvægi á markaðnum. Öll Norðurlöndin juku mjög að- gang að læknadeildum á sjötta og sjöunda áratugnum. Mennt- unartími lækna er langur, oftast 12-15 ár, því var ljóst, að heil- brigðiskerfin þurftu áratuga- langa og mikla aukningu til að taka við þessum fjölda. Mikil þörf hefur því sýnt sig vera fyrir einhvers konar spá eða fram- reikning til að hafa sem gleggsta mynd af líklegu ástandi atvinnu- markaðar lækna komandi ára. Skýrslur hópsins hafa komið út annað hvert ár og hafa þær óspart verið notaðar af heil- brigðisyfirvöldum landanna til að auðvelda ákvarðanatöku. Við mat á atvinnuhorfum ís- lenskra lækna voru ýmsar fors- endur notaðar, sem sumar eru augljósar og óumdeilanlegar, aðrar óvissari. Gengið var út frá skrám LÍ yfir íslenska Iækna 31. desember 1995 og einungis Fjöldi lækna á íslandi 31. des- ember 1995 var 896 og 418 voru erlendis. Tafla 2. og mynd 1. sýna aldurs- og kyndreifingu. í töflunni má sjá að hlutfall kvenna er mjög hátt í aldurs- hópnum 30-34 ára. Líkleg skýr- ing er, að karlar hafi þá farið úr landi í meira mæli en konur, þær fari seinna til útlanda en karlar og hækkar það hlutfallið. Tvennt er sérstaklega athygl- isvert við mynd 1. í fyrsta lagi kemur vel fram hve stór aldurs- hópurinn 45-49 ára er. Á hinum Norðurlöndunum er miklu jafn- ari aukning og því minni munur við aldurshópinn 50-54 ára. Annað sem vekur athygli og líka sker sig frá hinum Norður- löndunum er hinn litli hópur 30-34 ára, enda eru þeir ís- lensku læknar hlutfallslega flestir erlendis. Pessi aldurshóp- ur er mjög mikilvægur starfs- kraftur á öllum erlendum sjúkrahúsum og telst til reynd- ari aðstoðar- eða deildarlækna. Krafta þessa hóps njóta hin Norðurlöndin í mun meira mæli en íslendingar. Mynd 2 sýnir aldurs- og kyn- dreifingu lækna á hinum Norð- urlöndunum. Athygli vekur, að í öllum löndunum eru aldurs- hóparnir mjög ójafnir og svip- aðar kúfur á myndunum frá öll- um löndunum, flestir læknar eru á aldrinum 40-50 ára. Tafla III sýnir framboð af ís- lenskum læknum miðað við forsendur, sem taldar eru upp í töflu I. Að auki er gert ráð fyrir að vinnuvika verði áfram 40 tímar og muni ekki styttast sem neinu nemur á næstu 20 árum, 96% læknanna muni vinna fulla 40 tíma vinnu 43 vikur á ári en 4% muni starfa 30 tíma hluta- vinnu. Vöxtur vinnumarkaðarins er háður mikilli óvissu. Margir þættir hafa áhrif á þenslu í þjóð- arbúinu og ekki síst á heilbrigð- iskerfið. I þessari spá er gert ráð fyrir tveimur vaxtarmöguleik- um, í fyrsta lagi að hagvöxtur verði 1% allan tímann til 2010 (Möguleiki A) og hins vegar að vöxtur verði í samræmi við fólksfjölgun eða um 0,6% (Möguleiki B). Tafla IV og mynd 3 sýna hver verður útkoma þessa dæmis. Margt bendir til þess að um nokkurt offramboð verði að ræða fram til 2010,20-30 læknar samkvæmt möguleika A, 40-90 læknar samkvæmt möguleika B. Gera má ráð fyrir að íslensk- um læknum erlendis fjölgi sem þessu nemur, það hefur verið reynsla undanfarinna ára og verið í samræmi við fyrri spár. í spá hópsins sem kom út 1994 náði framboðsspáin til ársins 2025, þ.e. 10 árum lengra fram í tímann en þessi spá. Þá kom glögglega fram, að um 2015 fer mikill fjöldi íslenskra Iækna að fara á eftirlaun, það er hópur- inn, sem fyllir hæstu súluna á

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.