Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 52

Læknablaðið - 15.08.1996, Síða 52
mg mg MONU-L (isósorbíð mónónítrat) -forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag. Mónít-L (ísósorbíð mónónítrat) Framleiðandi: Omega Farma ehf. Forðahylki; C 01 D A 14 R B Hvert forðahylki inniheldur: Isosorbidi mononitras INN 30 mg eða 60 mg. Eiginleikar: Ísósorbíð mónónítrat er virkt umbrotsefni ísósorbíð dínítrats. Það slakar á slóttum vöðvum æöa, aðallega í bláæðum, minnkar þannig flæði til hjartans og þar með hjartastærð og auðveldar samdrátt hjartans. Lyfið hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%. Blóðþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil að þol myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niður- brotsefni útskiljast í þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir verk. Frábendingar: Lágur blóðþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikið blóðleysi. Aukinn þrýstingur í miðtaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir nítrötum. Meðganga og brjósta- gjöf: Öryggi lyfsins á meðgöngu og við brjóstagjöf hefur ekki verið staðfest. Aukaverkanir: Höfuð- verkur. Æðasláttur og roði. Lágur blóðþrýstingur. Svimi. Yfirlið. Hraður hjartsláttur. Uppköst. Milli- verkanir: Áfengi getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúð: Við brátt hjartadrep á aðeins að nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastærðir handa fullorðnum: í upphafi meðferðar er ráðlagður skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60 mg á dag, gefið að morgni. Ef þörf krefur, má auka skammt í 120 mg á dag, sem taka skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols við langvarandi notkun nítrata er óráðlegt að nota nítröt samfleytt meira en 12 klst. í hverjum sólarhring. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð 1. sept. 1995: Forðahylki 30 mg: 30 stk. — 1125 kr.; 100 stk. — 3459 kr. Forðahylki 60 mg: 30 stk. — 1605 kr.; 100 stk. — 4801 kr. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.