Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1996, Page 68

Læknablaðið - 15.08.1996, Page 68
ImIGRAN ÞEGAR TIL KASTANNA KEMUR Imigran (Glaxo Wellcome, 900125) STUNGULYF sc; N 02 C X 04.1 ml inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkínat, 16,8 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 12 mg, Natrii chlorid- um 7 mg, Aqua ad iniectabilia ad 1 ml. TOFLUR; N 02 C X 04 Hver tafla inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkínat, samsvarandi Sumatriptanum INN 50 mg eða 100 mg. Eiginleik- ar: Súmatriptan virkjar sérhæft serótónínviötaka af undirflokki 5-HT1D í heilaæðum. Lyfið veldur þannig samdrætti í heilaæöum, einkum greinum a. carotis. Víkkun þessara æða er tal- in orsök verkjanna við mígreni. Verkun lyfsins hefst 10-15 mínútum eftir gjöf undir húö og um 30 mínútum eftir inntöku. Aðgengi eftir gjöf undir húð er nánast 100%, en að meöaltali 14% eftir inntöku. Blóðþéttni nær hámarki innan 25 mín. eftir gjöf undir huð, en oft^st innan 45 mín. eftir inntöku. Dreifingarrúmmál er 2,7 1/kg. Binding við plasmaprótein er 20-30%. Lyfiö umbrotnar að miklu leyti (80%) í óvirk umbrotsefni í lifur og skilst út í nýrum. Abendingar: Erfið mígreniköst, þar sem ekki hefur náðst viðunandi árangur meö öðrum lyfjum. Clu- ster (Hortons) höfuðverkur. Lyfiö á einunqis að nota, þegar greiningin mígreni eða Cluster-höfuöverkur er vel staðfest. Frábendingar: Kransæðasjúkdómur, alvarlegur háþrýstingur, blóðrásartruflanir í útlimum, nýrnabilun, lifrarbilun. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Ekki má nota samtímis lyf, sem innihalda ergótamín. Imigran má ekki gefa fyrr en 24 klst. eftir gjöf ergótamíns og ergótamín má ekki gefa fyrr en 6 klst. eftir gjöf Imigran. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er vit?ð hvort lyfiö geti skaðað fóstur en dýratilraunir benda ekki til þess. Ekki er vitaö hvort lyfið skilst út í móöurmjólk. Aukaverkanir: Allt aö 50% sjúklinganna fá einhverjar aukaverkanir. Ymis þessara óþæginda hverfa eftir 30-60 mín. og gætu sum þeirra verið hluti af mígrenikastinu. Algengar (>1%): Óþægindi á stungustaö. Þreyta, sljóleiki. Tímabundin blóðþrýstingshækkun og húðroði. Ógleði og uppköst. Máttleysi og spenna í vöðv- um. Náladofi og hitatilfinning. Svimi. Þrýstingstilfinning meö mismunandi staðsetningu, oftast fyrir brjósti. Sialdgæfar (0,1% -1%): Hækkun lifrarenzýma í blóöi. Milliverkanir: Ekki má nota samtímis lyf sem innihalda ergótamín. Engar sérstakar milliverkanir hafa fundist við própranólól, díhydróergótamín, pízótífen eöa alkóhól. Varúð: Vara ber sjúklinga viö stjómun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins. víð notkun lyfsins geta komið fram tímabundin einkenni eins og brjóstverkur og þrýstingstilfinning, sem getur orðið töluverð og getur leitt upp (háls. Þó þessi einkenni líkist hjartaöng, heyrir til undantekninga að þau séu af völdum samdráttar í kransæðum. Herpingur í kransæðum getur leitt til hjartsláttartruflanna, blóð- þurröar og hjartavöövadreps. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem líkjast hjartaöng, ber að rannsaka með tilliti til blóöþurröar. Athugið: Stungulyfiö má ekki gefa í æö vegna herpings í kransæöum og mikillar blóöþrýstingshækkunar, sem getur átt sér stað. Vegna takmarkaðrar klíniskrar neyslu er ekki mælt með notkun lyfsins - handa sjuklingum eldri en 65 ára. Skammtastærðir handa fullorönum: Lyfið á að gefa við fyrstu merki um mígrenikast en getur verkað vel þó það sé gefiö síðar. Imigran er ekki ætl- að til varnandi meðferðar. Töflur: Venjulegur upphafsskammtur er ein 100 mp tafla. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra töflu að minnst tveimur klst. liðnum og ekki er mælt með hærri sólarhringsskammti en 300 mg. I sumum tilvikum getur verið nægjanlegt að nota 50 mg töflur. Töflumar á aö gleypa heilar með vatni. Stungulyf: Venjulegur upphafsskammt- ur er 6 mg (ein sprauta) undir húö. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra sprautu (6 mg) innan 24 klst., en minnst ein klst. verður aö líða á milli lyfjagjafa. Takmörkuð reynsla er af gjöf fleiri en fjögurra skammta (24 mg) á mánuði. Skammtastæröir handa börnum: Lyfiö er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: Stungulyf: einnota dæla 0,5 ml (= 6 mg virkt efni) x 2; - 7.846 kr.; einnota dæla 0,5 mg (= 6 mg virkt efni) x 2 + lyfjapenni (Glaxopen) - 7.846 kr. Töflur 50 mg: 12 stk. (þynnupakkað) - 11.360 kr. Töflur 100 mg: 6 stk. (þynnu- pakkaö) - 9.579 kr. Skráning lyfsins í formi stungulyfs er bundin því skilyrði, að notkunarleiðbeiningar á íslenzku um meðfylgjandi lyfjapenna (Glaxopen) fylgi hverri pakkn- ingu þess. Skráning lyfsins er bundin því skilyröi aö ávísanir takmarkist við mest eina pakkningastærð hvors lyfjaforms. 1) EUR. NEUROL. 1991; 31:279-281. 2) EUR. NEUROL. 1991; 31:339-344. 3) JAMA. 1991; 265:2831-2835 GlaxoWdlcome ▼ ▼ ▼ Áhrifaríkt hjá 70-90% mígrenisjúklinga.1) T 5HT-1 sérhæfður agonisti. Fáar og vægar aukaverkanir.2) T Aðgengileg lyfjaform. Einfaldar skammtastærðir. T Hröð verkun.3)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.