Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 21
IVagifem®
17G estradiol
staðbundinnar
meðferðar
Vagifem®
Til meðferðar á þurrki í skeið
Fjölbreytt úrval
hormónalyfja
K o n u r í j a / n v æ g i
Hver skeiðarstíll inniheldur: Estradiolum INN 25 míkróg. Eiginleikar: Lyfið inniheldur náttúrlegt
östrógen, 17-beta-estradíól. Lyfið bætir upp minnkaða eigin framleiðslu á östrógenum og dregur þar
með úr einkennum frá slímhúð í þvag- og kynfærum eftir tíðahvörf. Almenn áhrif lyfsins eru lítil sem
engin. Ábendingar: Óþægindi frá þvag- og kynfærum, sem stafa af östrógenskorti, eins og þurrkur í
skeið, kláði, sviði og særindi við þvaglát. Frábendingar: Legblæðingar af óþekktri orsök. Östrógen-
háð æxli. Meðganga. Aukaverkanir: Mjög sjaldgæfar (<0,1 %): Húð: Útbrot og kláði. Þvag- og kyn-
færi: Kláöi og erting í skeiö. Blæðing eða útferð. Skammtastærðir handa fullorðnum: Skeiðarstíllinn
er settur eins langt og hægt er upp í skeiðina. Hver skeiðarstíll er í einnota stjöku. Upphafsmeöferö:
Einn skeiðarstíll daglega í tvær vikur. Viðhaldsmeðferð: Einn skeiöarstíll tvisvar í viku. Athugið:
Langvarandi meðferð getur valdið ofvexti í legslímhúð. Ef blæðingar verða, þarf að útiloka æxlisvöxt
í leginu. Rétt er að hafa í huga líkur á blóðsegamyndun. Við langtímanotkun er mælt með
reglubundnu lækniseftirliti. Pakkningar og verð (apríl 1997): 15 stk. í einnota stjökum - kr. 2.381.
Afgreiðslutilhögun: R, E. Hverri pakkningu lyfsins skulu fylgja leiðbeiningar á íslensku um notkun
þess. Einkaumboð á fslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210 Garöabæ