Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 37
Olíumálverk efiir Henning Bang.
Nýtt flogaveikilyf frá
Novo Nordisk
Sú tilfinning að finna fyrir ró og bjartsýni, léttir á því þrúgandi ástandi sem
flogaveikir lifa við.
Sú upplifun að finna fyrir aukinni getu og frelsi, leiðir til öryggiskenndar og
betra lífs fyrir flogaveika.
Fyrsta lyfið sem hindrar endur-
upptöku GABA sértækt13
GabitriP tiagabin er áhrifaríkt í meðhöndlun staðfloga
hvort sem í kjölfarið fylgja allsherjar krampaköst eða ekki.2
Gabitril® tiagabin
Ábendingar: Gabitril er flogaveikilyf ætlað til notkunar samhliða öðrum
krampastillandi lyfjum til meðhöndlunar á staðflogumípartial seizures) hvort
sem í kjöifarið fylgja allsherjar krampaköst (secondary generalisation) eða
ekki. Gögn um verkun Gabitril eins sér (monotherapy) við meðferð á floga-
veiki liggja ekki fyrir.
Frábendingar: Engar þekktar.
Aukaverkanir: Aukaverkanir eru venjulega vægar eða mjög vægar. í flestum
tilvikum eiga aukaverkanir sér stað meðan verið er að auka skammtana á
Gabitril. Þær aukaverkanir sem oftast hafa komið fyrir í klínískum rann-
sóknum við notkun Gabitrils samhliða öðrum krampastillandi lyfjum, en
hafa ekki sést í sama mæli hjá sjúklingum, sem meðhöndlaðir hafa verið
með lyfleysu, eru svimi, þreyta og óróleiki. Sjaldgæfari aukaverkanir, sem
lýst hefur verið eru skjálfti, niðurgangur, geðdeyfð og geðstirðleiki
Varúð: Gabitril umbrotnar í lifur og því ætti að breyta skömmtun lyfsins hjá
sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, þ.e.a.s. gefa lægri skammta eða láta
líða lengra á milli skammta. Þó ekkert bendi til að fólk fái fráhvarfskrampa
við að hætta á Gabitril meðferð er mælt með að f slíkum tilvikum sé dregið
úr meðferð smátt og smátt yfir tveggja til þriggja vikna tímabil. Eins og við
notkun annarra flogaveikilyfja ætti að gæta varúðar við akstur og vélastjór-
nun, þegar sjúklingar taka Gabitril.
Meðganga og brjóstagjöf: Reynsla liggur ekki fyrir. Reynsla af notkun Gabi-
trils hjá þunguðum konum er takmörkuð en dýratilraunir benda ekki til
aukinnar tíðni á fósturskemmdum eða göllum. Engar upplýsingar liggja fyrir
um notkun Gabitrils samhliða brjóstagjöf. Á meðgöngutíma og við brjósta-
gjöf ætti einungis að nota Gabitril ef kostirnir við meðferðina eru augljósle-
ga meiri en hugsanleg áhætta.
Milliverkanir: Flogaveikilyf sem hafa áhrif á lifrarhvata (lifrarenzým), t.d.
fenýtóín, karbamazepín, fenóbarbital (fenemal), og prímídón, auka umbrot
tíagabíns í lifur. Gabitril hefur ekki marktæk áhrif á blóðþéttni fenýtóíns,
karbamazepíns, fenóbarbitals (fenemals), valpróats, warfaríns, digóxíns,
teófýllíns, eða hormóna frá getnaðarvarnatöflum. Címetidín hefur ekki mark-
tæk áhrif á blóðþéttni tíagabíns
Ofskömmtun: Einungis eru til fáar skýrslur um eiturverkanir Gabitrils en
einkenni eiturverkunar eru sljóleiki, svimi, riða eða skortur á samhæfingu
vöðva. í versta falli getur sjúklingur orðið viðutan og fjarrænn. Vitað er um
einn sjúkling sem missti meðvitund eftir að hafa tekið 300 mg af Gabitrili
ásamt fenýtóíni. í öllum tilvikum hafa einkenni um eiturverkun af Gabitrili
gengið til baka innan 24 klst. án nokkurra eftirkasta. Sjúklingar með
eiturverkanir af Gabitrili ættu að vera undir eftirliti læknis og fá viðeigandi
stuðn i ngsmeðferð.
Skammtastærðir handa fullorðnum, og börnum 12 ára og eldri: Gabitril er
gefið í töfluformi í þremur skömmtum á dag, sem teknir eru með mat.
Upphafsskammtur Gabitrils er 7,5-15 mg á dag og má auka dagsskammt um
5-15 mg á dag með viku millibili. Venjulegur viðhaldsskammtur er 30-50
mg á dag og má venjulega sjá stigvaxandi mun á svörun sjúklings á því
skammtabili. Skammtar allt að 70 mg á dag þolast vel. Skammtastærðir fyrir
aldraða: Mjög takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun Gabitrils hjá
öldruðum. Lyfið hagar sér eins í blóði aldraðra eins og annarra fullorðinna
og því ætti ekki að þurfa að breyta skammtastærð.
Skammtastærðir handa börnum: Börn 12 ára og eldri: Sömu skammtar og
handa fullorðnum, sbr. hér að ofan. Börn yngri en 12 ára: Enn sem komið er
liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um notkun Gabitril hjá börnum yngri en
12 ára.
Pakkningar og verð: (Verð apríl 1997)
Töflur 5 mg: 50 stk. - 7.827 kr.
Töflur 5 mg: 100 stk. - 13.410 kr.
Töflur 10 mg: 50 stk. - 10.150 kr.
Töflur 10 mg: 100 stk. - 17.486 kr.
Töflur 15 mg: 50 stk. - 14.633 kr.
Töflur 15 mg: 100 stk. - 25.321 kr.
Lyfið þolist vel ásamt annari
meðferð:
Heimildir
• Auðvelt í notkun samhliða öðrum
flogaveikilyfjum.2,6
• Aukaverkanir eru fáar, vægar
eða mjög vægar og oftast
tímabundnar.2'4
• Laust við merkjanleg áhrif
á vitræna hegðun einstakl-
ingsins.5
Engar klínískar milli-
verkanir við önnur
lyf sem skipta máli
(undanskilin eru lyf
sem örva lifrarhvata).2,6
GABITRIL
TIAGABIN
GABITRIL - góður valkostur... betra líf
1. Suzdak P.D., Jansen J.Aa. A Review of the Preclinical Pharmacology of
Tiagabine: A Potent and Selective Anticonvulsant GABA Uptake
Inhibitor. Epilepsia 1995, 36(6);612-26.
2. Richens A., Chadwick D.W., Duncan J.S., Dam M., Gram L., Mikkelsen
M., Morrow J., Mengel H., Shu V., McKelvy J F., Pierce M.W. Adjunctive
treatment of partial seizures with tiagabine: A placebo-controlled trial.
Epilepsy Research (1995) 21:37-42.
3. Gram L. Tiagabine: A Novel Drug with a GABAergic Mechanism of
Action. Epilepsia 1994, 35(Suppl. 5):S85-S87
4. Leppike I.E. Tiagabine: The Safety Landscape. Epilepsia 1995, 36 (Suppl.
6):S10-S13.
5. Sveinbjörnsdóttir S., Sander J.W.A.S., Patsalos P.N., Upton
D., Thompson P.J. & Duncan J.S. Neuropsychological
effects of tiagabine, a potential new anti-epileptic drug.
Seizure 1994; 3: 29-35.
6. Elson L.So., Wolff D., Graves N.M., Leppik I.E., Cascino
G.D., Pixton G.C., Gustavson L.E. Pharmacokinetics of
tiagabine as add-on therapy in patients taking enzyme-
inducing anti epilepsy drugs. Epilepsy Research (1995)
22:221-26.enzyme-inducing anti-epilepsy drugs. fp/'/epsy
Research (1995) 22:221-26.
Novo Nordisk
Farmaka Danmark AIS
Umboð é Islandi:
Phamaco hf.
Hörgatúni 2, Garðabæ
Novo Nordisk