Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 56
676
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Sameining sjúkrahúsa
Bjarni Arthursson Sjúkrahúsi Suðurlands
Samstarfi verður ekki komið á
með valdboði
Skipulagsathugun sjúkrahúsanna í Reykjavík og ná-
grenni, skýrsla unnin á vegum Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins um sameiningu sex sjúkrahúsa á suð-
vesturhorni landsins, hefur verið talsvert til umræðu frá
því hún sá dagsins ljós í ágústmánuði síðastliðnum.
Ýmsar athugasemdir hafa komið fram frá stjórnendum
og starfsmönnum sjúkrahúsanna enda lítið leitað sam-
ráðs við þá við gerð skýrslunnar. Meðal annars hafa
menn efast mjög um gildi þess að setja allar þessar stofn-
anir undir eina sameiginlega yfirstjórn.
Læknablaðið ákvað að leita álits forsvarsmanna sjúkra-
húsanna á þeim hugmyndum er fram koma í skýrslunni.
Hér fara á eftir viðtöl við framkvæmdastjóra sjúkrahús-
anna fjögurra utan Reykjavíkur, en í næsta tölublaði
verður rætt við fulltrúa stóru sjúkrahúsanna tveggja í
Reykjavík.
„Viö höfum verið í viðræðum
við bæði stóru sjúkrahúsin í
Reykjavík og vorum byrjuð á
þeim samstarfsviðræðum áður
en skýrslan um framtíðarsýnina
var kynnt. Samstarfi verður
nefniiega ekki komið á með
skipunum að ofan og valdboði,
það þarf að semja um slíkt með
frjálsum samningum aðila,“
segir Bjarni Arthursson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suð-
urlands á Selfossi.
Framkvæmdastjórinn segir
að ætlunin sé að ná samstarfi á
sem flestum sviðum, á sviði
röntgenlækninga, skurðlækn-
inga og um svæfingar. „Við er-
um ákveðin að ná á næstunni
niðurstöðu um ýmislegt sam-
starf á sviði þjónustu við íbúa
okkar og stefnum til dæmis að
því að ljúka samningum um
þjónustu svæfingalækna fyrir 1.
mars næstkomandi,“ segir
Bjarni og nefnir einnig sem
dæmi að viðræður hafi verið í
gangi milli Selfyssinga og full-
trúa á eðlisfræði- og tæknisviði
Landspítalans. „Þessar viðræð-
ur núna eru meiri og alvarlegri
en áður og það má líka segja að
allt sé undir, allt sé til skoðunar í
þeim efnum.“
Bjarni Arthursson segir að
einkum sé verið að tala um að
auka þjónustu með ferliverkum
og að læknar geti sinnt þeim í
auknum mæli á sjúkrahúsinu.
Myndu þá bæði sérfræðingar úr
Reykjavík og læknar Sjúkra-
húss Suðurlands sinna þeim.
„Það myndi minnka þörfina á
því að fólk leiti til Reykjavíkur
enda er það síaukin krafa frá
íbúum hér og læknum að hægt
sé að veita sem mest af þjónust-
unni hér fyrir austan. Við erum
ekki að tala um að taka upp
stórar og flóknar aðgerðir held-
ur fyrst og fremst þær sem af-
greiða má þannig að sjúklingar
fara heim samdægurs."
Bjarni segir að vandi sjúkra-
hússins sé sá að ekki sé til legu-
rými fyrir þessar stærri aðgerðir
og sé rúmafjöldinn til dæmis
helmingi minni en á Sjúkrahúsi
Akraness þó að íbúafjöldinn sé
svipaður. Hins vegar sé ágæt
aðstaða til að sinna ferliverk-
um. En hvað finnst honum um
skýrsluna um framtíðarsýnina:
„Þar eru í sjálfu sér engar nýj-
ungar og ég held að samstarf
eigi eftir að þróast eitthvað í
þessa átt - það er aðeins spurn-
ing um tíma. Þessi þróun verður
í takt við tækniþróun og þekk-
ingu og þar verður allt að hafa
sinn tíma. En það sem mér
finnst merkilegt er að þarna er
varpað fram hugmyndum um
eina stjórn og eina stofnun sem
ganga í raun þvert á þær hug-
myndir sem heilbrigðisráðherra
hefur haft. Rætt hefur verið um
að færa ákvörðunarvaldið út í
héruðin en þarna er talað um
eina yfirstjórn sem ég efast um
að geti gengið upp.“
Þá nefndi framkvæmda-
stjórinn að sjúkrahúsin fjögur
hefðu í meira en ár átt með sér
reglulega samráðsfundi. „Við
höfum hist mánaðarlega, fram-
kvæmdastjórar og skrifstofu-
stjórar sjúkrahúsanna auk þess
sem við köllum aðra aðila á
fundina eftir þörfum. Þar er far-
ið yfir sameiginleg mál meðal
annars sameiginleg útboð okkar
á rekstrarvörum og lyfjum sem
hefur skilað ákveðnum sparn-
aði og þetta samráð okkar hefur
því skilað ágætum árangri."
-jt-