Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 26
650
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Table III. Cognitive ability of inhabitants aged 70 and over in an agricultural community (area A, n=256) and a fishing
community (area F, n=185)
Test Results 95% confidence interval
Area A Area F Area A Area F P-value
MMSE 25.7 points 23.1 points 22.0-29.4 18.5-27.7 <0.001
WAIS-Similarities 10.5 pairs 7.4 pairs 4.5-16.5 1.4-13.4 <0.001
Trail A* 99.7 sec 130.0 sec 47.9-151.5 58.9-189.0 <0.001
Trail B** 197.5 sec 272.8 sec 79.9-315.1 119.7-425.6 <0.01
* n = 170 in area A/103 in area F
** n = 82 in area A/ 40 in area F
takenda, en á svæði L gátu 82 (29,3%) leyst
það af hendi og 40 (21,1%) á svæði S. Skýra
þessi botnáhrif sennilega lakari marktækni í
því prófi en hinum þremur. Einstaklingar sem
fengu færri en 10 stig á MMS-prófinu voru
teknir frá við útreikning því nokkur munur
reyndist vera á fjölda þeirra milli svæða. Það
breytti niðurstöðunni ekkert, meðalstig á
svæði L var þá 25,7±3,7 stig og á svæði S 24,0
± 4,6 stig og munurinn marktækur sem nemur
p<0,001 eins og áður. Einstakir þættir í MMS-
prófinu voru skoðaðir sérstaklega. Áttun í
tíma og á stað reyndust álíka betri á svæði L en
á svæði S (tími: p<0,001; staður: p= 0,001) og
bendir það til þess að prófstaður hafi lítið að
segja í þessari rannsókn. Skoðaðar voru niður-
stöður þegar allir þeir sem prófendur mátu að
hefðu líkamlega ágalla er gætu haft áhrif á
frammistöðu voru teknir út. Á svæði L falla þá
út 50 einstaklingar (19,5%) en 35 einstaklingar
(19,9%) á svæði S. Niðurstaðan á MMS-próf-
inu er þá 26,5 ± 2,8 stig á svæði L og 24,8 ± 4,1
á svæði S og munurinn milli svæða helst
óbreyttur. Aldur þátttakenda á svæði L reynd-
ist eilítið hærri en á svæði S eða 78,5 ár miðað
við 78,2 ár og aldur getur því ekki skýrt fram-
kominn mun. í sumum rannsóknum hafa kon-
ur komið lakar út en karlar. Þessi munur hefur
reyndar í flestum tilfellum skýrst með aldurs-
muni vegna meira langlífis kvenna (6,17). Svo
er einnig í þessari rannsókn. Þegar tekið er
tillit til aldurs hverfur þessi munur. Athugað
var hvort einhver munur væri á brottflutningi
milli landsvæðanna og fengnar upplýsingar um
íbúafjölda og aldurssamsetningu á árunum
1920-1970. Enginn munur milli landsvæða kom
fram í þessum þætti. Enginn munur reyndist
vera á skólagöngu þegar skoðað var 41 manns
úrtak árið eftir. Enginn reyndist hafa háskóla-
próf og aðeins um 10% framhaldsskólapróf á
báðum landsvæðum.
Tíðni heilabilunar metin út frá MMS-prófi er
hærri en víðast annars staðar ef miðað er við að
mörk eðlilegs og óeðlilegs ástands sé við 22 og
23 stig á því prófi.
Umræða
Þessi rannsókn leiddi í ljós verulegan mun á
vitrænni getu einstaklinga 70 ára og eldri í
tveimur aðskildum landsvæðum á Islandi. Til-
gátan var hins vegar sú að enginn munur yrði á
þessum hópum. Ekki er líklegt að þennan mun
megi rekja til þeirra aðferða sem notaðar voru.
Valin voru einföld taugasálfræðileg próf sem
hafa sýnt góða endurtektarnákvæmni (16,18),
sálfræðinemar og kennari voru þjálfaðir í notk-
un þeirra, höfundar fóru yfir niðurstöður og
mátu öll vafaatriði og hvað varðar eitt prófið
(líkingar) voru svör skráð orðrétt af prófend-
um, en túlkuð af einum höfunda (ÞJJ). Hugs-
anleg eru nokkur atriði í aðferðinni sem gætu
skýrt þennan mun að einhverju leyti. Það er
ætíð vafamál hvort prófa eigi verulega heilabil-
að fólk með minnisprófum. Á svæði S voru
fimm og á svæði L 24 einstaklingar sem dæmdir
voru óhæfir til að taka þátt í prófinu (tafla II).
Því má vera að prófendur á svæði S hafi prófað
veikari einstaklinga en prófaðir voru í svæði L.
Til að leiðrétta þetta hugsanlega misræmi voru
einstaklingar sem fengu færri en 10 stig á MMS-
prófi teknir frá við útreikning en niðurstaðan
breyttist ekki við það. Annað atriði sem hugs-
anlega hefur áhrif er hvar próf er lagt fyrir. Á
svæði L var farið heim til flestra þátttakenda en
á svæði S voru flest prófin lögð fyrir á heilsu-
gæslustöð. Fyrirfram var gert ráð fyrir að flest-
ir yrðu prófaðir á heilsugæslustöð, en heima ef
erfitt væri að koma öðru við. Aðstæður reynd-
ust misjafnar á landsvæðunum og þetta atriði
hafði auk þess ekki verið samræmt nægilega
fyrirfram. Ósennilegt er að þetta atriði geti
skýrt svo mikinn mun á niðurstöðum sem hér