Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 60
680 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Jóhann Einvarðsson Sjúkrahúsi Suðurnesja Margs konar samstarf er þegar fyrir hendi „Við vorum þegar byrjuð á margs konar samstarfs- og hag- ræðingaraðgerðum, höfðum til dæmis ákveðið að sameina heilsugæslustöð og sjúkrahús frá næstu áramótum og erum í samstarfi við Sjúkrahús Reykjavíkur um ákveðna hluti,“ segir Jóhann Einvarðs- son, framkvæmdastjóri Sjúkra- húss Suðurnesja, í spjalli við Læknablaðið. Er hann beðinn að rekja nánar í hverju sam- vinna þeirra Suðurnesjamanna við Sjúkrahús Reykjavíkur er fólgin: „Þar erum við að tala um samvinnu um tölvumál, inn- kaup, rekstur rannsóknardeild- ar og nú síðast samstarf við svæfingalækna, að þeir útvegi okkur svæfingalækni sem kem- ur hingað reglulega á aðgerðar- dögum,“ segir framkvæmda- stjórinn. „Eg held að sjúkrahús- in þróist kannski best á þennan veg, að samvinna á ákveðnum sviðum sé tekin upp sem geti hugsanlega endað með samein- ingu en menn verða að fá að vinna sig að slíku marki stig af stigi. Þegar reynsla er fengin af samstarfi eftir ákveðinn tíma má kannski skoða hvort ástæða sé til sameiningar." Jóhann Einvarðsson segir að þrátt fyrir ýmsa annmarka á skýrslunni losi hún um ákveðna umræðu. Ýmsar tölur í skýrsl- unni séu beinlínis rangar og hafi öll sjúkrahúsin eitthvað við þær að athuga. „Lykilinn að samein- ingu er hins vegar að finna hjá stóru sjúkrahúsunum tveimur í Reykjavík, Landspítalanum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Ef þau sameinast þá verður í raun lítið mál fyrir okkur hina, „radíus- karlana", eins og við erum stundum nefndir, að koma inn í hana. En ég sé ekki að pólitísk samstaða náist milli ríkis og Reykjavíkurborgar um hana - það verður að minnsta kosti ein- hver bið á því að mínu mati.“ Framkvæmdastjórinn segir að boð hafi nýlega komið frá læknadeild Háskóla íslands um aðstoð vegna hugmynda um há- skólasjúkrahús sem Sjúkrahús Suðurnesja gæti orðið aðili að. Slíkt sé allt á frumstigi og megi vel skoða. Jóhann sagði að áfram yrði unnið að því að koma á fyrirhuguðu samstarfi sem hann nefndi í upphafi, skýrslan nú breyti engu þar um. „Samstarf við svæfingalækna kom þannig til að þegar við aug- lýstum fyrr á árinu sóttu tveir læknar um en hvorugur var til- búinn til að setjast hér að. Þá kom þessi hugmynd að fá „lán- aða“ svæfingalækna frá Sjúkra- húsi Reykjavíkur og hugmyndin er að einhver þeirra komi hing- að aðgerðardaga. Þetta er dæmi um fyrirkomulag sem er hag- stætt báðum aðilum. Það hefur líka verið ánægjulegt í viðræð- um við fulltrúa SHR að þar er einungis verið að tala um sam- vinnu, þeim er engin yfirtaka í huga.“ Framkvæmdastjóri Sjúkra- húss Suðurnesja sagði að lokum að þessar samstarfstilraunir miðuðu að hagræðingu og sparnaði sem hlyti að vera sífellt markmið í rekstri sem þessum. „Skýrslan um framtíðarsýn er því að ýmsu leyti góð og ef við horfum framhjá villum í töl- fræðinni er hún grundvöllur ákveðinnar umræðu sem hvatt getur til samstarfs og kannski í framtíðinni til sameiningar." -jt- Reglur um notkun hlífðarhjálma við hjólreiðar barna Samkvæmt tillögum frá landlækni, Slysavarnaráði íslands og Umferðarráði samþykkti Alþingi heimild til handa dómsmálaráð- herra að gefa út reglugerð um að börn yngri en 15 ára skuli nota hlífðarhjálma við hjólreiðar. Dómsmálaráðherra hefur nú gefið út reglugerðina og tekur hún gildi 1. október 1997. Heimild er til þess að endurskoða málið eftir tvö ár. Athyglisvert er að seint er brugðist við vel ígrunduðum og sönn- uðum forvarnartillögum. Eftirfarandi dæmi sýna hvernig mál þróast. Bílbelti. Fyrstu tillögur komu fram 1975 (prófessor Ólafur Bjarna- son). Síðan árlegar tillögur frá landlækni og Umferðarráði. Alþingi samþykkti lög um bflbeltanotkun 1987. Hlífðarhjálmar við hjólreiðar barna og unglinga. Fyrstu tillögur komu fram á landsþingi landlæknisembættisins um slysavarnir 1983. Árlegar tillögur frá landlækni til Alþingis, síðan frá Umferðarráði. Alþingi samþykkti heimild 1995. Reglugerð ráðherra var samþykkt 1997. Langan tíma tók að fá samþykkt Alþingis fyrir hjálmanotkun við akstur mótorhjóla. Ólafur Ólafsson landlæknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.