Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
679
Sigurður Ólafsson Sjúkrahúsi Akraness
Verði sameinað í Reykjavík
gæti ýmislegt siglt í kjölfarið
Hluti Sjúkrahúss Akraness.
„Skýrslan sem slík er ekki
nógu vel unnin og því líst mér
ekki nógu vel á hana. Við höfum
þegar sent inn leiðréttingar við
rangfærslum. Ymsar hugmynd-
ir hennar eru þó skoðunarverð-
ar,“ segir Sigurður Ólafsson
framkvæmdastjóri Sjúkrahúss
Akraness. „Ég er hins vegar
ekki viss um að ráðuneytið hefði
þurft að fá þessa skýrslu unna
og greiða fyrir hana einhverjar
milljónir, hugmyndirnar hafa
meira og minna verið til um-
ræðu lengi vel.“
„Hugmyndir um að starfs-
mannateymi fari milli sjúkra-
húsanna og inni ýmsa þjónustu
af hendi sýnast mér í of lausu
lofti ennþá en hugsanlega má
þróa þær betur og koma á ein-
hverju samstarfi á mörgum svið-
um. Við erum til dæmis þegar í
formlegu samstarfi við krabba-
meinslækningadeild Ríkisspít-
alanna. Hingað kemur læknir
þaðan reglulega til ráðgjafar um
meðferð krabbameinssjúklinga
og fá þeir þannig oft meðferð
sína að miklu leyti hér á staðn-
um og eflaust má taka upp meiri
samvinnu á fleiri sviðum," segir
Sigurður ennfremur.
Framkvæmdastjórinn kvaðst
ekki óttast að ætlunin væri að
skera Sjúkrahús Akraness niður
við trog, þar væri öflug starf-
semi í gangi og spítalinn þjónaði
öllu Vesturlandi og fleirum.
Minnti hann á að töluvert hefði
verið um það að fólk af höfuð-
borgarsvæðinu leitaði lækninga
hjá Sjúkrahúsi Akraness. Bygg-
ist það á því að við spítalann
störfuðu sérfræðingar á hinum
ýmsu sviðum og biðlistar væru
oft styttri en á sjúkrahúsunum í
Reykjavík. Sigurður gat þess
einnig að sjúkrahús landsbyggð-
arinnar hefðu í raun mjög ólík-
um hlutverkum að gegna:
„Sjúkrahúsin út um landið
eru misjöfn að stærð og starf-
semin ólík, sum eru í raun öldr-
unarsjúkrahús en önnur hafa
fjölbreyttari starfsemi og því er
spurning hvort ekki mætti þróa
samstarf út frá því. En aðal-
vandinn er í Reykjavík. Ef hægt
verður að koma á samstarfi eða
sameiningu sjúkrahúsanna
tveggja í Reykjavík þá mun ým-
islegt sigla í kjölfarið hjá okkur
hinum.“
Sigurður segir að lokum að
vel líti út með rekstur Sjúkra-
húss Akraness á árinu. „Við
fórum rækilega gegnum rekst-
urinn með aðstoð fulltrúa ráðu-
neytisins fyrir þremur árum og
gerðum ýmsar lagfæringar. f
fyrra gekk reksturinn ágætlega
og allt er þetta að skila sér. Eg
hef því ekki áhyggjur af því að
ætlunin sé að rústa okkur hér,
við gegnum veigamiklu hlut-
verki í heilbrigðisþjónustunni á
Vesturlandi og erum alltaf til-
búin til að ræða samstarf sem
getur orðið þjónustunni hér að
gagni.“
-jt-