Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 36
658 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 burðarhóps. Þrjú gen skrá CO ensímið, hvat- beragenin tvö COl og C02 og litningagenið C03. Stökkbreytingar voru mun tíðari í hvat- beragenunum COl og C02 í Alzheimers sjúk- dómi en öðrum hrörnunar- eða efnaskiptasjúk- dómum í miðtaugakerfi. Þessar stökkbreyting- ar erfast frá móður og geta að nokkru leyti skýrt þann galla í súrefnisefnaskiptum Alz- heimers sjúklinga sem fram hefur kornið í ýms- um rannsóknum (22). Fleiri gen hafa verið talin geta aukið hættuna á síðkomnum Alzheimers sjúkdómi án þess að slíkt samband hafi verið staðfest svo óyggjandi sé. Þar má nefna alfa-l-andkýmótrýpsín A (ACT-A) genið, gen 5-repeat samsætu VLDL (very-low-density-lipoprotein R, VLDL-R) viðtakans og A2 samsætu HLA-A (human leu- kocyte antigen A) gensins (23,24). Alzheimers sjúkdómur er fjölgenasjúkdóm- ur þar sem umhverfisþættir koma einnig við sögu. Ýmsir umhverfisþættir tengjast sjúk- dómnum án þess að vægi þeirra hafi verið stað- fest. Til dæmis hafa rannsóknir bent til þess að höfuðhögg, sem leiða til meðvitundarleysis í fimm mínútur eða lengur, séu verulegur áhættuþáttur (25). Margir málmar, þar á með- al ál, drepa taugafrumur jafnvel í litlum skömmtum. Á1 hefur fundist í taugatrefjaflækj- um Alzheimers sjúklinga og þess vegna hefur því verið haldið fram að ál sé áhættuþáttur fyrir sjúkdóminn. Slíkt samband er þó ekki staðfest (26). Fleiri áhættuþættir úr umhverfinu hafa verið nefndir án þess að samband hafi verið staðfest. Ekki er hægt að greina teljandi mun á mein- gerð sjúkdómsins hjá þeim sem hafa þekktan genagalla og öðrum sem ekki hafa slíkan galla. Þess vegna má ætla að þrátt fyrir að margir þættir hafi áhrif á þróun sjúkdómsins sé eitt sameiginlegt meginferli sem skýri hina sér- kennandi meingerð (23). Hér á eftir verður fjallað nokkuð nánar um kímlínugenagallana í APP, PS-1 og PS-2 gen- unum og áhættugenið APOE-e4. (3-amýloid forveraprótín Einstaklingar með Downs heilkenni sem hafa þrjú eintök af litningi 21, fá gjarnan Alz- heimers breytingar í heila strax um tvítugt og einkenni sjúkdómsins um fertugt. Aukaeintak af litningi 21 eykur líkurnar á Alzheimers sjúk- dómi (27). Árið 1987 fundu menn gen á litningi 21, nánar tiltekið 21q21.2 (11) sem skráir þ-am- ýloid forveraprótín (þ-amyloid precursor prot- ein, App). Fyrsta stökkbreytingin í þessu geni fannst svo árið 1991. Taugaflögurnar sem ein- kenna Alzheimers sjúkdóm eru að verulegu leyti gerðar úr amýloid beta peptíðum (Aþ) sem eru sykruð fjölpeptíð, 40, 42 eða 43 amínósýrur að stærð, sem klofna frá miklu stærra þ-amýloid forveraprótíni. Eitt APP gen skráir mismunandi splæsiform App prótína, sem eru eingengishimnuprótín (liggja einu sinni í gegnum himnur). Aþ-peptíðin eru mynduð úr 28 amínósýrum frá amínóenda App á ytra borði himnunnar og 12 til 15 amínósýrum sem ganga inn í himnuna. Ákveðin ensím (secretases) búta App niður við myndun þess- ara peptíða. Nokkrar mismunandi stökkbreyt- ingar hafa fundist í eða rétt við Aþ svæði APP gensins á litningi 21. Stökkbreytingar í þessu geni hafa þó aðeins fundist hjá 10 til 15 fjöl- skyldum þrátt fyrir leit meðal hundruða fjöl- skyldna og skrifast því einungis örlítill hluti snemmkomins, ættlægs Alzheimers sjúkdóms á reikning stökkbreytinga í APP geni (2,5,12). Stökkbreytingar í PS genum skýra mun fleiri tilfelli af snemmkomnum Alzheimers sjúk- dómi sem tengd hafa verið erfðum. Fjöldi rannsókna bendir til þess að Aþ42 (Aþ-peptíð úr 42 amínósýrum) gegni lykilhlut- verki í þróun sjúkdómsins (1,2,5,6,12,23,27- 29). Árið 1991 var fyrst sýnt fram á að Aþ42 er torleystara í vatni en Ap40 og fellur því út við lægri styrk. Árið 1995 var síðan sýnt fram á að A|342 var lykilpeptíð í þroskuðum taugaflögum og einnig í smærri amýloid útfellingum í heila Alzheimers sjúklinga og myndast á undan Aþ40 útfellingum í heila fólks með Downs heilkenni (27). Sýnt hefur verið fram á að stökkbreyting í tákni 717 í APP geninu veldur hækkuðu hlutfalli Aþ42/Aþ40 í frumurækt. Einnig hefur verið sýnt fram á að stökkbreyt- ingar í PS-1 og PS-2 genum valda hækkun á styrk Aþ42 í fíbróblöstum og blóðvatni. Allar gerðir snemmkomins ættlægs Alzheimers sjúk- dóms virðast því eiga það sameiginlegt að aukning verður á A(142-peptíðum (2,27,29). APP umritið er splæst saman á mismunandi vegu og er því App til í nokkrum afbrigðum. Þegar amínóendi er klofinn frá á ytra borði frumuhimnu losnar hann út í millifrumurýmið sem seytt App (secreted App, sApp). Seytt App finnst í blóðvatni, heila- og mænuvökva. Enginn vafi leikur á því að bæði seytt App og himnubundið App (membrane-bound Ápp,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.