Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 66
684
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Að selja nafn sitt
í timaritinu Lancet frá 23.
ágúst síðastliðnum er ritstjórn-
argrein sem ber titilinn Selling
out, sem í samræmi við efni
greinarinnar mætti útleggja
frjálslega að selja sig. Á þessum
tímum sölumennsku, þegar allt
er metið til fjár og faðirvori
frelsisins snúið uppá andskot-
ann í nafni frjálshyggju, virðist
mér að þessi grein eigi erindi til
íslenskra lækna, að minnsta
kosti til umhugsunar en mögu-
lega sumum til eftirbreytni. Pví
ákvað ég að snara greininni
lauslega yfir á íslensku í heilu
lagi í stað þess að endursegja
hana.
En greinin er svona:
„Þróun amerískrar læknis-
fræði er furðuleg, hvernig sem á
hana er litið. Læknar eru orðnir
að almennum heilsuveitendum
(generic health providers), sem
starfa í þjónustu stórra gróða-
fyrirtækja. Sjúklingunum hefur
verið breytt í heilsugœsluneyt-
endur (health- care consumers),
sem skoðast nánast eins og
hlutabréf í fyrirtækinu. Einu
sinni gátu sjúklingar litið upp til
Ameríska læknafélagsins,
AMA (félags lækna sem höfðu
helgað sig heilbrigði amerísku
þjóðarinnar) í von um hjálp til
að rétta af hið ósiðlega ójafn-
vægi í heilsufari þjóðarinnar.
En í síðustu viku seldi Ameríska
læknafélagið nafn sitt og með
því fórnaði það hluta af valdi
sínu til að þjóna réttlætinu.
AMA hefur gert samning við
lækningaáhaldafyrirtækið Sun-
beam um að félagið fái greiðslu
fyrir að mæla með þeim fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins sem
nota á til heimahjúkrunar. Fé-
lagið neitar að gefa upp fjár-
hæðir, aðeins að hlutur þess
verði tengdur söluverðmæti
framleiðslunnar. í fimm ára
gagnkvæmum samningi skuld-
bindur AMA sig til að mæla
með hitapúðum, blóðþrýstings-
mælum, hitamælum, loft-
hreinsibúnaði og öðrum heimil-
isheilsutækjum frá fyrirtækinu
Sunbeam. (Nuddtæki verða
einnig inni í samningnum því að
í sameiginlegu auglýsingaplaggi
frá AMA og Sunbeam er sér-
staklega tekið fram að þeir hjá
Sunbeam voru fyrstir til að setja
á markað fótanuddtæki sem
bæði verkaði sem fótasnyrting-
ar- og nuddtæki). Auk þessa
mun ÁMA sjá um kennsluefni á
umbúðir, sjá til dæmis um hóp-
mælingar á blóðþrýstingi og
stofna ráðgjafarnefnd til að
hjálpa Sunbeam við að koma
nýjum heimilisheilsuvörum á
markað.
Einn alvarlegasti þátturinn í
samkomulaginu er einokunar-
svipur hans. Munu sjúklingar
sniðganga samkeppnisvörur,
jafn góðar eða jafnvel betri og ef
til vill ódýrari, sem ekki hafa
gæðastimpil AMA? Eru læknar
skuldbundnir, vegna álits AMA
að ráðleggja aðeins rakatæki
sem AMA hefur samþykkt. Er
hugsanlegt að í þjóðfélagi þar
sem menn eru lögsóttir fyrir lít-
ilræði yrðu þeir neyddir til þess?
Ættu sjúklingar að trúa því að
læknar eða sjúkrahús væru lak-
ari vegna þess að þau ráðlegðu
önnur tæki en þau sem AMA
græddi á? Hvar stæði AMA ef
eitthvað af vörunum reyndist
gallað eða hættulegt? Og útilok-
ar samningurinn AMA og fé-
laga þess frá því að ráðleggja
almenningi jafngóða vöru frá
öðru fyrirtæki?
Meðmæli með framleiðslu-
vörum eru ekki ný í amerískri
læknisfræði. Á síðari hluta
fimmta áratugarins mælti Am-
eríska tannlæknafélagið, ADA,
opinberlega með Crest tann-
kremi og á stuttum tíma hækk-
aði markaðshlutdeild tann-
kremsins uppí 30%. Það varð
söluhæsta tannkrem í Ameríku.
En ólíkt AMA gerði ADA sér
ekki fjárhagslegan mat úr því en
veitti öðrum tannkremstegund-
um sem uppfylltu staðla ADA
einnig viðurkenningu. í seinni
tíð hefur manneldisnefnd Am-
eríska hjartafélagsins, AHA,
mælt með 580 fæðutegundum
sem framleiddar eru af 53 fram-
leiðendum. Bæði þessi félög
rukka framleiðendurna aðeins
um prófunarkostnað en hvorugt
græðir á ágóðanum af vörunum
sem þau mæla með.
I Bretlandi varð rimma í síð-
ustu viku útaf ágengri sölu-
mennsku Breska læknafélags-
ins, BMA. í tímaritinu General
Practitioner, tímariti heimilis-
lækna, var gefið í skyn að BMA
væri tilbúið að selja persónu-
upplýsingar um 155 þúsund
meðlimi sína, hvaða fyrirtæki
sem vildi borga, fyrir 30 pence
eða rúmlega 30 ísl. krónur.
Upplýsingarnar sem seldar eru,
eru um staðsetningu og þjóð-
fræðilega stöðu (geo-demogra-
phic profile) þeirra. Þessi maka-
lausa söluvæðing í stofnun sem
hefur verið skoðuð sem fagfélag
lækna hefur valdið skelfingu og
skömm meðal margra almennra
lækna í Bretlandi. Skyldi uppá-
tæki AMA eiga eftir að valda
svipaðri ógleði meðal meðlima
þess félags?
Ein svörun var fyrirsjáanleg.
Petta var snilldarbragð af hálfu
Sunbeam sagði Sam Craig, pró-
fessor í markaðsfræði við New
University Stern School of
Buisness í viðtali við Lancet.
Petta veitir nýju lífi í framleiðni
þeirra. Ég get ekki séð að neitt