Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 46
666 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 3. Sjúkdómurinn þarf að vera greinanlegur á forstigi. 4. Meðferð á forstigi þarf að bera árangur. 5. Rannsóknarskilmerki þurfa að vera við- eigandi. 6. Rannsókn þarf að vera ásættanleg. 7. Nægur mannafli og tæki þurfa að vera til greiningar og meðferðar sjúkdómsins. 8. Með reglubundnu millibili þarf að vera hægt að endurtaka skimunina. 9. Hættan á að valda skaða verður að vera minni en líkur á ávinningi. 10. Kostnaður vegna skimunar sé veginn á móti ágóða. Þessar leiðbeiningar fyrir skimun sjúkdóma hafa staðist tímans tönn og halda enn gildi sínu í faraldsfræðilegum þýðisrannsóknum. Skimun sjúkdóma meðal aldraðra þarf helst að ná til allra í tiltölulega fámennum aldurs- hópi. Búast má við því að margir sjúkdómar greinist án þess einkenna hafi orðið vart og menn því verið ómeðvitaðir um. Skimun fyrir marga aldurshópa er frek á tíma, fé og mann- afla. Mörgum finnst slík rannsókn óþægileg og vilja ekki taka þátt í henni (5). Þeir sjúkdómar sem greinast munu ekki allir vera á læknanlegu stigi og meðferðarheldni annarra líkleg að verða ótrygg. Arðsemi skimunar er því talin lítil, þannig að fjármunum til forvarna væri betur varið á annan hátt (6). Tilfellaleit: Líta ber á tilfellaleit sem forvarn- ir á öðru stigi. Stefnt er að því að finna sjúk- dóm eða fötlun til þess að að koma í veg fyrir elnun og fylgikvilla. Við tilfellaleit er oftast notuð sú aðferð að senda bréf til allra einstak- linga í tilgreindum markhópi. Fundnir hafa verið sérstakir áhættuþættir meðal aldraðra, þeir eru: a) aldur yfir áttrætt, b) nýlegur maka- missir eða skilnaður, c) félagsleg einangrun, d) fátækt, e) búferlaflutningur, f) nýleg veikindi eða útskrift frá sjúkrahúsi. Þessir hópar þurfa við þessar kringumstæður að fá sérstaka gát heilsugæslunnar. Hvers konar sjúkdómar og fötlun meðal aldraðra eru það sem vert er að finna með tilfellaleit? 1. Dvínandi sjón og heyrn. 2. Skert hreyfigeta, göngulagstruflun. 3. Erfiðleikar með eigin umhirðu. 4. Lélegt þrek og þol. 5. Nýlegt þyngdartap. 6. Þunglyndi, geðlægð. 7. Svarar ekki bréfum, þiggur ekki boð um að koma til lækniseftirlits. Heyrnardeyfa hrjáir um þriðjung 65 ára fólks, tvo þriðju þeirra sem eru eldri en 70 ára og þrjá fjórðu eldri en 80 ára. Meiri árvekni og nýting hjálpartækja getur orðið mörgum til góðs. Skimun fyrir augnsjúkdómum leiðir oft í ljós læknanlega sjúkdóma. Mikilvægt er að fylgjast reglulega með tannhirðu fólks með eig- in tennur, einkum ef það verður fyrir heilsu- farslegu áfalli og leggst inn á sjúkrahús. Dánarorsakir íslendinga: Helstu dánaror- sakir íslendinga eru sjúkdómar í blóðrás eða æðakölkun (um 40%), illkynja æxli (um 27%), smitnæmir sjúkdómar svo sem lungnabólga (um 10%) og slys, einkum meðal hinna yngri, en glapasjúkdómar á meðal hinna eldri. Tíðni dánarorsaka breytist með aldri einkum við að blóðrásarsjúkdómum fjölgar hlutfallslega og ná yfir helming dauðsfallanna eftir 75 ára ald- ur. Rannsókn á niðurstöðum krufninga á ís- lendingum fyrir 20-30 árum sýndi að tíðni bæði æðakölkunar og illkynja æxla var hærri hjá hópnum yfir nírætt borið saman við aldurshóp- inn um sjötugt, þótt tíðni beggja þessara sjúk- dómaflokka sem dánarorsök væri lægri meðal þeirra eldri (7,8). Æðakölkun veldur krans- æðasjúkdómum, slagi og blóðþurrðarhelti og skapar þróttleysi og fötlun um aldur fram. Allt sem dregur úr æðakölkun er líklegt að koma hinum eldri til góða og stuðla að betri heilsu. Hjartavernd: Á undanförnum tveimur ára- tugum hefur þeim fækkað verulega sem látist hafa af völdum kransæðastíflu. Nikulás Sigfús- son og félagar hafa reiknað út frá gögnum Hjartaverndar að fækkun kransæðasjúkdóma skýrist að tveimur þriðju vegna minni reyk- inga, betri meðferðar við háþrýstingi og neyslu hollrar fæðu (9). Á næringarsviðinu urðu á 18 árum talsverðar breytingar á neysluvenjum landsmanna. Neysla á mettaðri fitu dróst saman, grænmetis- og kornmetisneysla jókst lítillega en fiskneysla var umtalsvert meiri en á meðal nágranna- þjóða (10). Tafla II sýnir breytingar á neyslu fitu úr mjólkurafurðum á þessu tímabili eins og fram kemur í grein Nikulásar og félaga. Tekið er sérstaklega til fiskneyslunnar sem bætir fjölómettuðum fitusýrum við mataræði lands- manna. En vægi lækninga og tækniframfara í læknis-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.