Læknablaðið - 15.11.1997, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
733
Fig. 1. In methionine metabolism, homocysteine constitutes the juncture between the transmethylation cycle, by which homocyst-
eine is remethylated to form methionine, and the transsulfuration pathway, by which homocysteine is irreversibly catabolized to
sulfate. (Modified from Brattström (thesis). University of Lund, 1989).
Erfðir: Systaþíónín-(3-synþasi erfist á víkj-
andi hátt. Arfhreinn skortur á systaþíónín-þ-
synþasa liggur langoftast að baki heilkennisins
hómósystínmigu. Algengi hómósystínmigu af
völdum skorts á systaþíónín-þ-synþasa er um
það bil 1:200.000 (3,19). Á íslandi virðist
hómósystínmiga vera heldur algengari eða
1:50.000 samkvæmt rannsókn sem birtist 1985
(20). Arfblendni fyrir systaþíónín-þ-synþasa-
skorti er álitin koma fyrir hjá 0,3-1% almenns
þýðis (3,19). Arfblendnir einstaklingar hafa að
meðaltali þriðjung eðlilegrar hvatavirkni en
munur milli einstaklinga er mikill (21). í rann-
sóknum hafa arfblendnir annað hvort ekki haft
marktæka hækkun eða tiltölulega væga hækk-
un á tHcy og yfirleitt hafa tHcy arfblendinna
og samanburðarhópa skarast talsvert (21).
Þannig er mæling á tHcy eftir föstu ekki góð
aðferð til að greina arfblendna einstaklinga frá
heilbrigðum. Betur gefst að nota svokallað
meþíónín-hleðslupróf (21). Gefinn er stór
skammtur af meþíóníni sem hækkar tHcy
vegna aukins álags á transsulfuration leiðina. Á
þeirri leið ræður systaþíónín-p-synþasi hraðan-
um þannig að meþíónínhleðslan leiðir til meiri
hækkunar á tHcy ef skert hvatavirkni er fyrir
hendi. Sú niðurstaða meþíónín-hleðsluprófs er
þó ekki sértæk fyrir systaþíónín-þ-synþasa-
skort.
Heilkennið hómósystínmiga getur stafað af
arfhreinum skorti á hvötum endurmeþýlering-
ar (3). Slík tilfelli eru þó það sjaldgæf að margir
líta svo á að hómósystínmiga sé samheiti systa-
þíónín-þ-synþasaskorts (3). Aftur á móti er
erfðabreytileiki á hvötum endurmeþýleringar
ekki óalgeng orsök vægrar hækkunar á tHcy,
einkum hvað varðar meþýlentetrahýdrófólat
redúktasa. Mörgum stökkbreytingum í geni
hvatans hefur verið lýst (22). Nýlega fundu
Kang og samstarfsmenn algengt afbrigði af me-