Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1997, Síða 60

Læknablaðið - 15.11.1997, Síða 60
768 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 íðorðasafn lækna 94 Limur Fyrir einhverja tilviljun fór undirritaður að skoða uppruna orðsins Iimur. Islensk orðabók Máls og menningar greinir frá því að limur merki meðal ann- ars líkamshluti, útlimur, með- limur, félagi, prakkari. Islenska orðsifjabókin tekur í sama streng og tilgreinir tengsl við færeyska heitið limur, sænska og danska heitið lem, nýnorska heitið lím og fornenska heitið lim. í hinni miklu ensku orða- bók Websters má svo fletta upp heitinu limb og þar er meðal annars vísað í íslenska heitið lim sem merkir trjákróna eða laufg- aðar trjágreinar. Þar með erum við nánast komin í hring. Griplimur í tengslum við þetta rifjaðist upp heitið griplimur sem notað var um tíma um efri útlim, membrum superius, en Iðorða- safn lækna gefur þar kost á fjór- um heitum: efri útlimur, axlar- limur, handlimur, griplimur. Undirritaður hefur einungis óljósa minningu um það hvenær hann komst fyrst í kynni við heitið griplimur, en andúðin sem það vakti er enn nánast áþreifanleg. Apar og óæðri dýr máttu svo sem hanga á griplim- um sínum í trjánum, en menn réttu ekki hver öðrum griplim- ina! Þó er heitið sent slíkt ágætt sem kerfisheiti til að nota um útlim (L: extremitas) sem getur gripið, á sama hátt og heitið ganglimur lýsir útlim sem nota má til gangs. íðorðasafnið gefur einnig kost á fjórum heitum á neðri útlim, membrum inferius: neðri útlimur, mjaðmarlimur, fótlimur og ganglimur. Athygli vert er að hvorki ganglimur né griplimur eru uppflettiorð í orðabók Máls og menningar. Auk þessara lima má svo finna kynlim (L: phallus, G: phallos) í Fósturfræðiheitunum, en heitið getnaðarlimur finnst alls ekki í Iðorðasafninu, penis nefnist þar reður. Þá má og geta þess að hin færeyska Læknabók á sjógvi og á landi eftir H.D. Joensen til- greinir heitin upplimir, göngu- limir og kynslimur. Samheiti Þegar Iðorðasafni lækna er flett, sést fljótt að ekki er lögð nein sérstök áhersla á að birta samheiti á læknisfræðilegum fyrirbærum. Þvert á móti var í upphafi tekin sú meginstefna að til hvers erlends fræðiheitis ætti helst ekki að svara nema eitt ís- lenskt. Þegar íslensk samheiti eru engu að síður birt, er það oftast vegna þess að ekki virðist ótvírætt hvert þeirra ber að nota. Leitast er þó við að fylgja þeirri meginreglu að það æski- legasta sé fyrst í röðinni. Krafan um orð fyrir orð byggir á þeirri hugmynd málfræðinga að ótví- ræð merking og notkun fræði- heita auki nákvæmni í fræðilegri umfjöllun. Vafalaust má færa sterk rök fyrir þessu, en undir- ritaður hefur engu að síður oft saknað samheitanna. Dagleg umræða lækna og sjúklinga um sjúkdómsfyrirbæri og líkams- hluta snýst nefnilega ekki aðeins um fræðilega nákvæmni, heldur einnig og ekki síður um nauðsynleg blæbrigði í tjáningu þegar rætt er um mikilvæg eða viðkvæm málefni. Mikilvægt er oft að geta útskýrt hlutina á nokkra mismunandi vegu. Eins og fyrr sagði er reður eina heitið sem íðorðasafnið gefur um penis. Þegar flett er upp í Samheitaorðabók Svavars Sigmundssonar kemur hins veg- ar í ljós að undir heitinu reður er vísað í samheitið getnaðarlim- ur, sem á hvorki meira né minna en 40 önnur tilgreind samheiti. Líklegt er að læknir þurfi að hafa nokkur þeirra á takteinum. Typpi og tilli gætu hentað best fyrir yngstu aldurs- flokkana, en hugsanlega limur eða beseFi fyrir þá allra elstu. Ekki verður séð að það spilli íðorðasafninu neitt þó að reður sé tilgreint sem hið viðurkennda líffærafræðiheiti, en að einnig sé gefinn kostur á öðrum þeim helstu. ERCP Sum verkefni eru svo erfið að lausn fæst ekki þrátt fyrir margra vikna og mánaða um- hugsun og yfirlegu. I mars síð- astliðnum kom ofangreind skammstöfun í tölvupósti frá Danmörku. Stafnefni (acronym) þetta, ERCP (í ar sí pí eða e err sjé pjé), er komið úr ensku og amerísku læknamáli og þar notað í stað samsetningarinnar endo- scopic retrograde cholangio- pancreatography. Læknisfræði- orðabók Stedmans lýsir því að holspeglun eða holsjárskoðun sé gerð til að skoða, þræða og spýta skuggaefni inn um lifrar- og gallrásarbiðu (ampulla Vat- eri, ampulla hepatopancreat- ica) til þess síðan að gera rönt- genrannsókn á gall-, lifrar- og briskirtilsrásum. Full nákvæmni krefst þess að íslenska samsetn- ingin verði afturvirk gall- og brisrásamyndataka með hol- speglun. Býður einhver betur? Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.