Læknablaðið - 15.07.1999, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
613
fyrirferð í lungnarót eða hnút í lunga (76%).
Ellefu af 21 sjúklingi, sem höfðu staðbundna
íferð eða samfall, reyndust hafa illkynja æxli
og var það hæsta hlutfall illkynja æxla í nokkr-
um einstökum flokki röntgenbreytinga. Enginn
af 15 sjúklingum með eðlilega röntgenmynd
reyndist hafa illkynja æxli.
Af 64 illkynja æxlum voru 58 frumæxli í
lungum, 28 hjá konum og 30 hjá körlum. Þar af
voru 29 kirtilmyndandi krabbamein (50%), 13
flögukrabbamein (22%), 10 smáfrumukrabba-
mein (17%), tvö stórfrumukrabbamein (3%),
eitt óflokkanlegt lungnakrabbamein, eitt
krabbasarkmein (carcinosarcoma), eitt silfur-
frumuæxli (carcinoid tumor) og eitt eitilfrumu-
æxli. Að auki greindist einn sjúklingur með
iðraþekjuæxli (mesothelioma) við aðgerð. I
fimm tilvikum reyndist vera um að ræða mein-
vörp til lungna, frá frumæxli í nýrum í tveimur
tilvikum og í maga, brisi og ristli hvert í einu
tilviki. Mjög vandlega var farið yfir vefjasýni
og sjúkraskrár sjúklinga með kirtilmyndandi
krabbamein til að ganga úr skugga um, að um
frumæxli í lunga væri að ræða.
Mynd 1 sýnir Kaplan-Meier lífslengdargraf
fyrir þá 58 sjúklinga sem greindust með frum-
æxli í lungum. Miðgildi lífslengdar sjúklinga
með frumæxli í lungum var 29 vikur og 15,5%
lifðu í fimm ár. Meðal þeirra 19 sjúklinga með
frumæxli í lungum sem fóru í skurðaðgerð í
lækningaskyni var fimm ára lifun 37%. Tveir
sjúklingar af 39, sem ekki fóru í skurðaðgerð,
voru lifandi eftir fimm ár (5%), einn með kirtil-
myndandi krabbamein og einn með flögu-
þekjukrabbamein.
Umræða
Rannsókn þessi var gerð til þess að kanna
árangur við greiningu illkynja æxla með
berkjuspeglun meðal sjúklinga sem grunaðir
voru um illkynja sjúkdóm í lungum. Sérstak-
lega var kannað næmi frumurannsóknar með
burstatækni sem grunnaðferðar við sýnistöku
og borið saman við vefjarannsókn. Þá var útlit
röntgenbreytinga og sjáanlegra breytinga í
berkjum flokkað til þess að rannsaka tengsl við
greiningu illkynja æxla.
I framskyggnum rannsóknum á greiningarár-
angri við berkjuspeglun hefur skoðun vefjasýn-
is úr sjáanlegum æxlum í lungum skilað 70-
100% árangri (2). Þá hefur frumurannsókn með
burstatækni skilað um eða yfir 80% árangri í
flestum framskyggnum rannsóknum þar sem
Lifunarhlutfall %
Mynd 1. Lifunfrá greiningu meðal 58 sjúklinga með frumœxli í
lungum.
æxli í berkju var sjáanlegt (4-7) og berkjuskol
hefur ýmist gefið svipaðan árangur eða heldur
lakari. Næmi þessara rannsóknaraðferða
minnkar í 33-75% þegar þeim er beitt við æxli
sem eru það langt úti í lunga að þau sjást ekki
við speglun (10,12,16,17). Flestar rannsóknir
benda til þess að sé skyggningu beitt í þeim
tilfellum auki það verulega árangur speglunar
við greiningu (16,17).
I okkar sjúklingahópi var sjáanlegu æxli í
berkju lýst hjá 20 og þar af reyndust 17 hafa ill-
kynja æxli, en hjá þremur var illkynja sjúkdóm-
ur afsannaður með annarri speglun eða við
krufningu. Af 13 sjúklingum, sem höfðu ekkert
óeðlilegt við útlit berkja, var tekið vefjasýni í
gegnum berkju í skyggningu hjá 10 og greind-
ust illkynja æxli hjá sjö (70%) þeirra en aðeins
tveir af 13 (15%) höfðu jákvætt frumusýni með
burstatækni.
Til að bera saman næmi frumurannsóknar og
vefjarannsóknar er gagnlegast að líta á þann
hóp sjúklinga sem reyndist hafa illkynja æxli
og báðum rannsóknunum var beitt hjá. Þar
kemur í ljós að næmi vefjarannsóknar var tals-
vert hærra, en 38 af 54 (70%) greindust með
vefjarannsókn en aðeins 18 af 54 (33%) með
frumurannsókn. I heild bættu rannsóknirnar þó
hvora aðra upp, því að þrír sjúklingar höfðu já-
kvæða frumurannsókn þrátt fyrir neikvæða
vefjarannsókn, en 23 höfðu jákvæða vefjarann-
sókn en neikvæða frumurannsókn og er þetta í
samræmi við aðrar rannsóknir (13).
Næmi frumurannsóknar með burstatækni er
lægra í þessari rannsókn en flestum öðrum sem
birst hafa erlendis. Mögulegt er að samsetning
sjúklingahóps með talsvert af æxlum utarlega í