Læknablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 89
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
669
Ný stjórn Geðlækna-
félags íslands
Aðalfundur Geðlæknafélags íslands var
haldinn 1. maí síðastliðinn. Úr stjórn gengu þá
Magnús Skúlason varaformaður og Jón Brynj-
ólfsson gjaldkeri. í þeirra stað voru kjörin þau
Erla Axelsdóttir og Sigurður Bogi Stefánsson.
Stjórn félagsins er því þannig skipuð: Hall-
dóra Olafsdóttir formaður, Sigmundur Sig-
fússon varaformaður, Sigurður Páll Pálsson
ritari, Siguður Bogi Stefánsson gjaldkeri og
Erla Axelsdóttir meðstjórnandi.
Þrjár undirnefnir starfa nú á vegum félags-
ins: nefnd um sállækningar en formaður henn-
ar er Einar Guðmundsson, menntunarnefnd,
formaður Högni Óskarsson og nefnd um líf-
fræðilega geðlæknisfræði og er formaður
hennar Kristinn Tómasson.
Frá formanna-
ráðstefnu
Skýrslu formanns LÍ frá formanna-
ráðstefnu LÍ sem haldin var 14.
maí síðastliðinn er að finna á
heimasíðu LÍ.
Læknablaðið á netinu:
http://www.icemed.is/
laeknabladid
Sumarleyfislokun
skrifstofu
læknafélaganna
Skrifstofa læknafélaganna verður
lokuð vegna sumarleyfa allflestra
starfsmanna frá og með mánu-
deginum 19. júlí til og með föstu-
deginum 6. ágúst.
Sumarleyfislokun
Læknablaðsins
Skrifstofa Læknablaðsins verður
lokuð vegna sumarleyfa frá 9. júlí
til 6. ágúst að báðum dögum með-
töldum.
Eitt Læknablað
í júlí og ágúst
Útgáfa Læknablaðsins í júlí og
ágúst, 7. og 8. tbl., er sameinuð í
þessu blaði en næsta blað kemur
út 1. september.
Skilafrestur í septemberhefti 20.
ágúst.
Aöalfundur LÍ1999
Aðalfundur LÍ fyrir árið 1999 verð-
ur haldinn dagana 8. og 9. október
næstkomandi. Að þessu sinni
verður fundurinn á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, nánar tiltekið í
Hlíðasmára 8. Aðalfundir LÍ eru
opnir öllum félagsmönnum.