Læknablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 66
650
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Gullain-Barré heilkenni sem
einkennist af lömunum og
Reiters heilkenni með asept-
ískum liðbólgum sem geta
orðið viðvarandi.
Fyrirbyggjandi aðgerðir.
Neytendum skal bent bent á
að forðast að láta hrátt kjöt
eða blóðvökva úr því menga
önnur matvceli. Einnig skal
varast neyslu á illa steiktu eða
soðnu kjöti, ógerilsneyddri
mjólk og yfirborðsvatni þar
sem hœtta er á mengun og við-
hafa ítrasta hreinlœti við mat-
argerð.
Inflúensutímabilið
1998-1999
Frá áramótum til 29. mars
síðastliðin bárust sýni frá 313
sjúklingum til rannsóknastofu
Landspítalans í veirufræði
vegna öndunarfærasýkinga.
Þar af greindist inflúensa A
hjá 104 og inflúensa B hjá
fimm. Rúmlega 95% inflú-
ensutilfella reyndist því vera af
A stofni. Miðað við 17. mars
hafði RS-veirusýking greinst
hjá 22 og adenóveirusýking
hjá 33 en veiruleit og/ eða
ræktun höfðu á þessum tíma
ekki borið árangur hjá 154.
Þannig fékkst ekki greining
hjá yfír helmingi þeirra sem
rannsakaðir voru. Dreifing
fjölda þeirra sem greindust
eftir vikum á tímabilinu er
sýnd á mynd 2.
Inflúensu á tímabilinu varð
fyrst vart hér á landi upp úr
miðjum janúar og virðist hún
hafa náð hámarki í febrúarlok
en síðan fór að draga úr fjölda
greindra tilfella. Þær niður-
stöður sem fengust á rann-
sóknastofunni benda til þess
að aðrar orsakir fyrir öndunar-
færasýkingum en inflúensa
hafi einnig farið vaxandi í jan-
úar og febrúar og fór ekki að
draga úr þeim fyrr en eftir
miðjan mars mánuð. Nokkrir
stofnar af inflúensu A hafa
verið greindir til undirtegunda
og hafa þeir allir reynst vera af
A(H3N2). Þetta er í samræmi
við upplýsingar frá Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni
en þessi veirustofn var megin-
orsök inflúensu, bæði austan-
hafs og vestan á tímabilinu.
Mótefnavaki sá, sem var í
bóluefnum sem notuð voru hér
á landi og annars staðar, sam-
svarar þessum inflúensustofni.
Sóttvarnayfirvöld mæla
með því að allir sem eldri eru
en 60 ára og allir með lang-
vinna sjúkdóma og skerðingu
á ónæmiskerfinu láti bólusetja
sig gegn inflúensu á hverju
hausti. Um mánaðamótin nóv-
ember/desember 1998 höfðu
um það bil 50 þúsund Islend-
ingar látið bólusetja sig. Nokk-
uð var í umræðunni að þeir,
sem bólusettir voru, hefðu þrátt
fyrir það fengið inllúensu. Við
það er eftirfarandi að athuga:
Mynd 2. Vikulegur fjöldi staðfestra inflúensu A og B veirusýkinga með veiruleit og/eða rœktun veturinn
1998-1999 á rannsóknarstofa Landspítalans í veirufrœði.