Læknablaðið - 15.07.1999, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
631
Magne Nylenna ritstjóri norska
lœknablaðsins ávarpar gesti í
lokahófi fundarins sem Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið bauð til í tilefni 85 ára af-
mœlis Lœknablaðsins.
Auglýsingamynstrið
breytist
Önnur nýjung sem lækna-
blöð þurfa að taka afstöðu til
eins og allir aðrir er Netið. Þar
bjóðast margir nýir möguleik-
ar á því að koma upplýsingum
til almennings og jafnframt að
afla tekna, svo sem með því
að birta auglýsingar. Þar er þó
ekki allt sem sýnist og af máli
Svíanna sem hafa einna mesta
reynslu af Netinu mátti ráða
að það er enginn dans á rósum
að þéna peninga á Netinu. Því
fylgir auk þess að útgefendur
þurfa að taka afstöðu til sið-
fræðilegra álitamála eins og
þess hvernig ber að haga birt-
ingu auglýsinga á Netinu, en
eins og kunnugt er setja lands-
lög birtingu lyfjaauglýsinga
þröngar skorður.
A þessu sviði gætu breyt-
ingar verið í nánd ef marka má
þróunina sem orðið hefur í
Bandarfkjunum. Magne Ny-
lenna ritstjóri norska lækna-
blaðsins var nýkominn af
fundi í Vancouver-hópnum, en
hann er skipaður ritstjórum
Þrír sœnskir fundarmenn njóta veitinga í boði Vilhjálms Rafnssonar
ritstjóra og ábyrgðarmanns Lœknablaðsins, frá vinstri: Jarl Holmén,
Kristina Johnson og Bo Lennholm ritstjóri sœitska lœknablaðsins.
helstu læknablaða hins engil-
saxneska heims, auk þess sem
Norðurlönd hafa átt þar full-
trúa. Hann sagði frá því að í
Bandaríkjunum hefðu orðið
miklar breytingar á auglýs-
ingamynstri lyfjaiðnaðarins.
Þær fjárhæðir sem lyfjafyrir-
tæki verja til hefðbundinna
auglýsinga í læknaritum hafa
staðið í stað undanfarin ár en á
sama tíma hafa útgjöld þeirra
til beinna neytendaauglýsinga
aukist með ævintýralegum
hætti, aukningin er meira en
tuttuguföld á sex árum.
Blöðin standa vel
En þótt sótt sé að málgögn-
um lækna úr ýmsum áttum var
á fundarmönnum að heyra að
yfirleitt væri staða blaðanna
góð, það var engan bilbug að
finna á þeim, síður en svo.
Flestir þeir sem tóku til máls
voru sammála um að lækna-
blöðin þyrftu að fylgjast með
tímanum og bregðast við nýj-
um viðhorfum og aukinni
samkeppni um athygli lækna.
Það væri best gert með því að
koma til móts við fleiri þætti í
Taito Pekkarinen ritstjóri
finnska lœknablaðsins þakkar
fyrir sig. Stuttu síðar var hann
farinn að syngja.
umhverfi lækna og að sinna
einnig ýmsum áhugamálum
þeirra öðrum en hinum strang-
fræðilegu.
Allir voru þó á því að slík
breyting mætti ekki verða á
kostnað þess sem hefur verið
og verður að vera aðall lækna-
blaðanna, að þau séu trúverð-
ug og uppspretta réttra og
áreiðanlegra upplýsinga um
læknisfræði og heilbrigðis-
mál.
-ÞH