Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1999, Qupperneq 48

Læknablaðið - 15.07.1999, Qupperneq 48
Megrunarlyf viö offitu sfflfrXENICAL o r I í s t a t Fyrir þá sem þurfa að léttast Flokkun eftir verkun: Lyf við offitu (ATC-fiokkun aosabod. Lyfjaform og útlit: Hylki, hart. Turkísblá hetta og botn með áletruninni .ROCHE XENICAL 120*. Virk innihaldsefni: Hvert hylki inniheldur 120 mg orlístat. Lyfhrif: Orlístat er kröftugt, sértœkt og langverkandi lyf sem hamlar virkni lípasa í meltingarveginum. Það verkar í maga og smágirni með því að mynda samgilt tengi við virka serín setið á lípasa í maga og lípasa frá brisi. Óvirka ensímið getur því ekki hýdrólýserað fitu úr fœðunni, á formi þríglýseríða, yfir í fríar fitusýrur og einglýseríð. Ábendingar: Xenical er œtlað ásamt hitaeininga- skertu fœði til meðferðar hjá offitusjúklingum með þyngdarstuðul (BMI= þyngd(kg)/hœð(m)-hœð(m)) hœrri eða jafn og 30 kg/m2 (BMI) eða yfirþyngdar- sjúklingum (BMI 28 kg/m2) með tengda áhœttu- þœtti. Meðferð með orlístati œtti einungis að hefja ef megrunarfœði eingöngu hefur leitt til minnst 2,5 kg þyngdartaps á 4 vikum. Meðferð með orlístati á að hœtta eftir 12 vikur ef sjúklingi hefur ekki tekist að losa sig við a.m.k. 5% af líkamsþyngd sinni reiknað frá upphafi lyfjameðferðar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Ráðlagður skammtur af orlístati er eitt 120 mg hylki, sem á að taka rétt fyrir, með eða allt að einni klst. eftir máltíð. Sé máltíð sleppt eða hún án fitu á að sleppa að taka lyfið inn. Sjúklingurinn á að vera á fœði sem inniheldur öll nauðsynleg nœringarefnl, en aöeins fœrri hita- einingar en hans daglega þörf segir til um og œtti um 30% hitaeininganna að vera úr fitu. Mœlt er með ríkulegri neyslu ávaxta og grœnmetis. Daglegri neyslu fitu, kolvetna og próteins skal dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ekki hefur verið sýnt fram á að orlístat skammtar stcerri en 120 mg þrisvar á dag bœti árangur. Áhrif orlístats leiða til aukningar á fltu í saur, strax 24-48 klukkustundum eftir inntöku. Þegar meðferð er hœtt verður fituinnihald hœgða yfirleitt aftur eins og það var fyrlr meðferð, innan 48-72 klukku- stunda. Upplýsingar um öryggi og verkun eftir 2 ára notkun eru ekki fyrirliggjandi, því œtti meðferð meö orlístati ekki að vara lengur en í 2 ár. Sérstakir sjúklingahópar. Áhrif orlístats hjá sjúkling- um með lifrar- og/eða nýrnabilun, börnum og öldruðum sjúklingum hafa ekki verlð rannsökuð. Börn: Orlístat er ekki œtlað til notkunar handa bömum. Frábendingar: Langvinnt vanfrásogsheilkenni. Gallteppa. Brjóstagjöf. Þekkt ofnœmi fyrir orlístati eða einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Orlístat er ekki ráðlagt til notkunar á meðgöngu. Sérstök varúð og varúðarreglur varðandi notkun: í klínískum rannsóknum var minnkun líkamsþyngdar við orlístat meðferð minni hjá sjúklingum með fullorðinssykursýki heldur en hjá sjúklingum sem ekki voru með sykursýki. Þegar orlístat er tekið getur nákvœmt eftirlit með sykursýki lyfjameðferð verið nauðsynlegt. Meðferð með orlístati getur hugsanlega truflað frásog fituleysanlegra vítamína (A, D. E, K). Flestir sjúklinganna, sem fengu meðferð með orlístati í allt að 2 ár í klínískum rannsóknum voru með A-, D-, E- og K-vítamín og betakarótíngildi sem voru innan eðlilegra marka. Til að tryggja fullnœgjandi nœringu á að ráðleggja sjúklingum á megrunar- fœði að neyta fœðu sem inniheldur ávexti og grœnmeti og íhuga skal neyslu fjölvítamína. Vítamín á að taka minnst 2 klst. eftir gjöf orlístats eða að kvöldi fyrir svefn. Ráðleggja skal sjúklingum að halda sig við það matarœði sem mœlt er með (sjá kafla um skammta). Hœtta á meltingartruflunum (sjá kafla um aukaverkanir) getur aukist þegar orlístat er tekið með fituríkri fœðu (t.d. fœða með 2000 hitaeiningum á dag, þar sem > 30% hitaeininga úr fitu jafngildir > 67 g af fitu). Daglegri fituneyslu œtti að dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ef orlístat er tekiö með einstakri fituríkri máltíð, geta líkur á meltingartruflunum aukist. Milliverkanir: Samtímis gjöf orlístats og fíbrata, akarbósa, biguaníða eða lyfja sem valda lystar- leysi er ekki ráðlögö ef rannsóknir á milliverkunum eru ekki fyrirliggjandl. Þegar warfarín eða önnur segavarnarlyf eru gefin ásamt orlístati (stórir skammtar og langtíma meðferð) á að fylgjast með blóðstorkugildum. Engar milliverkanir viö dígoxín, fenýtóín, getnaðar- varnartöflur, nífedipín, nífedipín forðalyf, eða alkóhól hafa komið fram. Pravastatín: Ef orlístat er gefið sjúklingum sem taka pravastatín aukast (skammtaháð) aukaverkanlr pravastatíns, þ.á.m. rákvöðvasundrun, vegna aukinnar blóðþóttni pravastatíns. Það getur þurft að breyta skammti pravastatíns. Vítamín og betakarótín: Taka þarf tlllit til minnkunar á frásogi D- og E-vítamíns og betakarótíns (sjá kafla um sérstök varúð og varnaðarorö varðandi notkun). Meðganga og brjóstagjöf: Notkun orlístats á meðgöngu er ekki ráðlögð. Enn sem komlð er eru ekki fullnœgjandi upplýsingar fyrirliggjandi um töku orlístats hjá þunguðum konum til þess að meta hugsanleg áhrif oriístats á því að valda afbrigði- leika í fóstri eða eituráhrifum. Þar sem ekki er vitað hvort orlístat berst í brjósta- mjólk á ekki að nota orlístat við brjóstagjöf. Áhrif á akstur og stjórnun vélknúinna tœkja: Ekkert hefur komið fram sem bent gœti til að lyfið hafi áhrif á hœfni til aksturs eða stjórnunar vélknúinna tœkja. Aukaverkanir: Aukaverkanir af völdum orlístats eru aðallega frá meltingarvegi. Á fyrsta meðferðarári voru algengustu aukaverkanirnar fitublettir frá endaþarmi (27% sjúklinga), hœgðavottur með vindgangi (24% sjúklinga), bráð þörf fyrir hœgða- losun (22% sjúklinga), fitugar/seigfljótandi hœgðir (20% sjúklinga), þunnfljótandi hœgðir (12% sjúklinga), aukin hœgðalosun (11% sjúklinga) og vangeta við stjórn á hœgðum (8% sjúklinga). Tíðni aukaverkana minnkaði með langtímanotkun orlístats. Aðrar meðferðartengdar aukaverkanir sem komu fram við tíðnl > 2% og með tíðni >1% yfir lyfleysu voru: Meltingarfœri: Kviðverkir/-óþœgindi, vind- gangur, þunnfljótandi hœgðir, linar hœgðir, verkir/óþœgindi í endaþarmi, tannkvillar og tannholdskvillar. Öndunarfœri: Sýkingar í efri öndunarfœrum, sýkingar í neðri öndunarfœrum. Miðtaugakerfi: Höfuðverkur. Kynfœri: Tíðatruflanir. Geð: Kvíði. Almennar: Þreyta. Þvagfœri: Sýkingar í þvagrás. Ofskömmtun: Ekki hefur verið grelnt frá ofskömmtun orlístats. Einstakir 800 mg skammtar og endurteknir skammtar allt að 400 mg þrisvar á dag í 15 daga hafa verið prófaðir bœði hjá fólki sem er innan eðlilegra þyngdarmarka og hjá offitusjúklingum, án marktœkra aukaverkana. Auk þess hafa 240 mg skammtar þrisvar á dag verið gefnir offitu- sjúklingum í sex mánuðl. Eigi umtalsverð ofskömmtun orlístats sér stað, er mœlt með því að fylgst só með sjúklingnum í sólarhring. Rannsóknir á dýrum og mönnum hafa bent til þess að öll áhrif á líkamann af völdum hömlunar á lípasa gangi hratt til baka. Pakkningar og hámarksverö í smásölu frá 1.7.1999: Hylki 120 mg: 42 stk. (þynnupakkað): 5.467 kr.; 84 stk. (þynnupakkað): 9.741 kr. Greiðslufyrirkomulag: Tryggingastofnun ríkislns tekur ekki þátt í greiðsu lyfsins nema sjúklingur hafi lyfjaskírteini. Elli- og örorkulífeyrisþegar með lyfjaskírteini greiða 1.000 krónur fyrir lyfið, en aðrir 3.500 krónur. Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyfseðilsskylt. Heimilt er að ávísa lyfinu til 100 daga notkunar í senn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.