Læknablaðið - 15.07.1999, Side 60
644
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
heimsókna á bráðamóttöku
sjúkrahúss, 0,3% innlagna á
sjúkrahús og allt að 0,3%
dauðsfalla á sjúkrahúsum. I
nýlegri bandarískri könnun
kom í Ijós að yfír 100.000
Bandaríkjamenn deyja árlega
af völdum aukaverkana lyfja
en það þýðir að meiri líkur eru
til þess að deyja af aukaverkun
lyfs en af slysförum, sykursýki
eða lungnabólgu. Einng kom í
ljós að sem dánarorsök meðal
Bandaríkjamanna koma auka-
verkanir lyfja í fjórða sæti, á
eftir hjartasjúkdómum, krabba-
meinum og heilablóðfalli.
Engin ástæða er til að ætla að
þetta sé öðruvísi í Evrópu og
ætti að hvetja alla til árvekni
og varfærni.
Sjö dauöasyndir auka-
verkanatilkynninga
Árið 1986 birtist bókarkafli
eftir Inman og Weber þar sem
meðal annars var fjallað um
tregðu lækna til að tilkynna
aukaverkanir og tregðu heil-
brigðisyfirvalda til að taka á
vandamálum sem tengjast auka-
verkunum. Þeir skilgreindu það
sem þeir kölluðu sjö dauða-
syndir varðandi aukaverkanatil-
kynningar (eða skort á þeim) en
þær eru: 1. áhyggjuleysi, 2. ótti
við að flækjast í málaferli, 3.
sektarkennd, 4. áhugi á að safna
tilfellum og birta eigin niður-
stöður, 5. vanþekking á skipu-
lagi aukaverkanaskráningar, 6.
tregða við að tilkynna eitthvað
sem bara er grunur og 7.
sinnuleysi ásamt tímaskorti.
Höfundar telja að öll þessi at-
riði skipti máli og hindri lækna
að einhverju marki í að tilkynna
aukaverkanir.
Hvenær eru tengsl
aukaverkunar og lyfs
sönnuð?
Greiningu aukaverkunar og
tengsla hennar við ákveðið lyf
hefur stundum verið líkt við
sjúkdómsgreiningu, taka verð-
ur tillit til fjölmargra atriða
varðandi sjúkdóminn sem ver-
ið er að meðhöndla, tímasetn-
inga og annarra lyfja. Margar
aukaverkanir fylgja styrk
lyfsins í blóði og eru því mest
áberandi þegar hann er
mestur, sem fyrir flest lyf er
einni til þremur klukkustund-
um eftir töku lyfsins. Annað
sem styrkir mjög tengsl auka-
verkunar og lyfs er ef auka-
verkunin hverfur þegar notk-
un lyfsins er hætt og enn frek-
ar ef hún kemur aftur við það
að lyfið er gefið aftur (re-
challenge). Einnig skiptir
máli hvort sjúklingurinn er
með sjúkdóm sem getur gefið
einkenni er líkjast óþægind-
unum sem um ræðir. Til þess
að hægt sé að flokka tengsl
lyfs og aukaverkunar sem
ólíkleg, hugsanleg eða líkleg,
er nauðsynlegt að allar þessar
upplýsingar liggi fyrir.
Tilhneiging framleið-
enda til að gera lítið úr
aukaverkunum
Lyfjaframleiðendur, eins og
aðrir framleiðendur, reyna að
sjálfsögðu að selja sína vöru
og beita til þess ýmsum ráð-
um. Sumir lyfjaframleiðendur
reyna á ýmsan hátt að gera lít-
ið úr aukaverkunum sinna
lyfja en flestir framleiðendur
taka ábyrga afstöðu. Dæmi
um villandi framsetningu,
sem nokkrir framleiðendur
hafa stundað, er að birta töflu
þar sem einn dálkur sýnir tíðni
aukaverkana þegar lyfið var
tekið og annar sýnir það sama
fyrir lyfleysu. Látið er í það
skína eða stundum sagt berum
orðum að lyfið hafi ekki auka-
verkun nema hún sýni meiri
tíðni hjá þeim sem tóku lyfið.
Gallinn við þetta er oftast sá
að venjulega er um að ræða
niðurstöður úr lítilli klínískri
rannsókn og ekki er gerð nein
tilraun til tölfræðilegs mats
eins og til dæmis með því að
gefa upp öryggisbil eða styrk
(power). Hér er því um að
ræða mjög villandi framsetn-
ingu sem virðist hafa farið í
vöxt á undanförnum árum.
Tilhneiging vissra hópa
í þjóðfélaginu til að
mikla aukaverkanir og
hættu við lyfjanotkun
Þeir sem stunda skottu-
lækningar af einhverju tagi
tala gjarnan um aukaverkanir
og eiturverkanir eins og eitt-
hvað sem eingöngu fylgi lyfj-
um en ekki þeim vörum eða
aðferðum sem viðkomandi
býður upp á. Ekki þarf að
eyða mörgum orðum að þessu
enda vita flestir að skottu-
lækningum fylgja aukaverk-
anir. Þar nægir að nefna al-
gengar og alvarlegar auka-
verkanir sumra náttúrulyfja
og fjölda aukaverkana og
dauðsfalla við nálastungu-
lækningar.
Aukaverkanir
náttúrulyfja
Tilkynningar um aukaverk-
anir náttúrulyfja hafa lengst af
verið í molum en eru að taka á
sig form á allra síðustu árum. I
flestum löndum þar sem auka-
verkanaskráning er stunduð er
hvatt til að læknar sendi frá
sér tilkynningar um
aukaverkanir lyfja og náttúru-
lyfja (hér er átt við náttúrulyf í
víðri merkingu). Augljóslega
er jafn mikil þörf fyrir að skrá
aukaverkanir lyfja og náttúru-
lyfja.
Magnús Jóhannsson
læknir