Læknablaðið - 15.07.1999, Side 77
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
659
ar hún var að lýsa allsleysi á
jólum - „það var nú auman,
ekki gátu krakkarnir einu
sinni fengið skitu“.
í svörum við spurningaskrá
nr. 75 um strandnytjar á þjóð-
háttadeild og öðrum heimild-
um þar kemur fram að hákarl
var notaður við fleiru en melt-
ingartruflunum. Vel þótti til
dæmis gefast að bera hákarls-
gall á mar. Því var almennt
trúað að hákarlalýsi væri hollt
og fyrirbyggjandi gegn hvers
konar veikindum. Menn áttu
að verða sterkir af því og sér-
staklega var sælst til þess að
gefa það börnum og ungling-
um sem ódöngun var í. Kona
úr Norður-Múlasýslu fædd
1907 skrifar:
„A næsta bæ var lítill dreng-
ur svo yfirkominn af kirtla-
veiki að allir kirtlar voru
bólgnir, sumir með sárum og
fæturnir bognir. Þrautaráðið
var að reyna að koma í hann
hákarlalýsi. Amma sá um það.
Honum batnaði og fór að
stunda íþróttir. Er hann hafði
aldur til fór hann suður og hélt
áfram með íþróttir. Lærði og
hefur verið íþróttakennari við
skóla í Reykjavík og er ný-
hættur ef hann er það ekki
enn.“
Margar sögur voru um há-
karlslýsistunnu á bæjarhlað-
inu með ausu eða öðuskel hjá
sem allir fengu sér af daglega
sér til hressingar og heilsubót-
ar. Það var hitagæft sögðu
menn, sjómenn drukku til
dæmis hákarlalýsi við kulda.
Hákarl þótti ágætt gigtarmeð-
al. Hann átti að vera góður
fyrir þungaðar konur og auka
mjólk brjóstmæðra. Reyndar
var það líka þekkt fyrir vestan
að gefa kúm hákarl til að
hækka nyt. Við ígerðir og
áverka þótti gott að leggja há-
karlsflís:
„Ég hef sannreynt það við
ígerð sem oft kom rétt utan
við nögl á hendi, kallað
hunds-hland. Þá var tekin svo-
lítil sneið af skyrhákarli lögð á
ígerðina og bundið utanum og
þegar fór að svíða þó nokkuð
var bindið tekið og allur
gröftur farinn og sárið hreint,“
skrifar einn heimildarmanna.
Og í þjóðsögunum kemur
víða fram að gamall hákarl, 9-
15 ára hákarl er þar nefndur til
sögu, átti að ráða bót á hvers
kyns veikindum.
Það var almenn trú að ef
menn ætu nógan hákarl þegar
þeir sátu að brennivínsdrykkju
yrðu þeir ekki illa drukknir -
„vera má að þessi eitur dragi
eitthvað hvort úr öðru“ - sagði
einn af heimildarmönnum
sem greinilega var lítill vinur
þessara efna. Úr annarri átt
kom þessi vísa þar sem sjá má
vestfirska framburðinn á orð-
inu hákarl, það er hákal:
Þó að eðli þyki svíns
og þegna hafi lagt í val
ber ég ást til brennivíns
og blessa yfir skyrhákal.
Har du glömt bort
Ásas forskningsledighet
eller att Preben
skall pá kurs?
' * \\jLdxt~J^ÁuJL^—■
Vikariatsakuten
för korttidsvikariat
- nu pá Internet
Ett hastigt uppkommet behov av vikarie kan fyllas med
en annons i Sylfs och Lákartidningens vikariatsakut pá
Lákartidningen pá Internet -
www.lakartidningen.se/html/vikariatsakuten.htm
Erbjudandet gáller hela Norden.
Annonsen kostar 100 kronor.
Uppge din postadress sá sánder
vi inbetalningskort.
Válkommen!