Kjarninn - 12.12.2013, Side 15

Kjarninn - 12.12.2013, Side 15
35/36 kjarninn STJÓRNMáL andrúmsloft á fundinum, þar sem skuldaniðurfellingar- tillögurnar voru til umræðu, sem og hugmyndir um að minnka til muna barna- og vaxtabótagreiðslur og styrkja í staðinn heilbrigðiskerfið. Þessu voru þingmenn Framsóknar- flokksins ekki hrifnir af að langstærstum hluta og ræddu um nauðsyn þess að breyta þessu, samkvæmt heimildum Kjarn- ans. margir vildu að lengra yrði gengið Áætlunin sem kynnt var í lok nóvember undir yfir- skriftinni Leiðréttingin gerir ráð fyrir að samtals muni 80 milljarðar fara úr ríkissjóði til þess að lækka verðtryggðar húsnæðislána skuldir og 70 milljarðar til viðbótar eru skráðir sem heildarumfang aðgerðar sem gerir fólki kleift að greiða séreignar sparnað innan á húsnæðislán sín, gegn skatta- afslætti. Aðgerðirnar eru valkvæðar og því óljóst hversu mikið umfang aðgerðanna verður þegar upp verður staðið, en þær dreifast yfir fjögur ár. Elsa Lára sagði á þingflokksfundinum, samkvæmt heim- ildum Kjarnans, að margir flokksmanna hefðu bundið vonir við að skuldir yrðu lækkaðar mun meira en áætlun stjórn- valda gerir ráð fyrir. Hún sagðist skynja þetta á samtölum við flokksmenn. Aðrir þingmenn flokksins hafa þó fagnað að- gerðunum og sagt þær góðar og í takt við það sem uppálagt var fyrir kosningarnar í vor, og hefur Sigrún Magnúsdóttir, formaður þingflokksins, meðal annars látið hafa eftir sér að þingflokkurinn fagni þessum aðgerðum. Deilt um fjárlög Mikill titringur var í þingflokki Framsóknarflokksins þegar tillögur voru lagðar fram um breytingar á fjárlagafrumvarp- inu fyrir 2. umræðu um það. Í skjali sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fyrir fjárlaganefnd 6. desember, kemur fram að breytingar á fjárlagafrum- varpinu miði meðal annars að því að skera niður framlög til þróunarmála upp á 700 milljónir króna og barnabætur upp á 300. Þá er tekið fram að framlög í vaxtabætur og „Elsa Lára sagði á þingflokks- fundinum að margir flokks- manna hefðu bundið vonir við að skuldir yrðu lækkaðar mun meira en áætlun stjórnvalda gerir ráð fyrir.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.