Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 21
Byrgið: jesús, peningar,
kynferðisbrot og kúrekahattur
Guðmundur Jónsson, síðar ávallt kallaður
Guðmundur í Byrginu, stofnaði ásamt
öðrum kristilega meðferðferðarheimilið
Byrgið fyrir heimilislausa vímuefna-
sjúklinga, spilaíkla og fólk með ýmsar
persónuleikaraskanir í desember 1996.
Guðmundi gekk vel að ota Byrgis totanum
og fékk töluverða athygli, enda hafði hann
sérstakt útlit. Var með tagl og gekk iðu-
lega um með kúrekahatt.
Þessi eljusemi Guðmundar leiddi til
þess að Byrgið fékk aðstöðu undir starf-
semi sína, meðal annars í Rockville á
Miðnesheiði og síðar á Efri-Brú í Gríms-
nesi. Auk þess unnu margir sjálfboðaliðar
fyrir Byrgið og miklir fjármunir streymdu
til þess frá bæði einstaklingum og fyrir-
tækjum. Auk þess styrkti ríkissjóður
Byrgið um að minnsta kosti 226 milljónir
króna. Vistmenn greiddu þess utan
fyrir vistina. Fáa grunaði að pottur væri
brotinn í starfseminni. Hún var meðal
annars tilnefnd til Samfélagsverðlauna
Fréttablaðsins árið 2006 og fangar voru
vistaðir þar.
Í desember 2006 var sendur út frétta-
skýringaþátturinn Kompás um Byrgið og
ásakanir á hendur Guðmundi um stórfellt
fjármálamisferli og kynferðislegt samneyti
við vistmenn lagðar fram. Guðmundur
harðneitaði sök en mánuði síðar skilaði
Ríkisendurskoðun úttekt sem sýndi fram
á að fjármunir hefðu sannarlega verið
notaði til einkaútgjalda. Sama dag var
Byrginu lokað. Þá höfðu nokkrar konur
sem voru fyrrverandi vistmenn í Byrginu
kært Guðmund fyrir kynferðislega mis-
beitingu og nauðgun. Hann neitaði þeim
ásökunum einnig en um miðjan janúar
2007 lak á netið myndband sem sýndi Guð-
mund og eina kvennanna í kynlífsleikjum.
Viðbrögð Guðmundar voru að hóta því að
kæra konuna fyrir nauðgun. Hann sagði
hana hafabyrlað sér smjörsýru.
Guðmundur var á endanum dæmdur
í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
í starfi. Hæstiréttur mildaði dóminn um
hálft ár. Hann var einnig ákærður og
dæmdur fyrir stórfelldan fjárdrátt og
umboðssvik.
#2
62/63 kjarninn TOpp 5