Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 48
39/43 kjarninn BÍLaR
leiðangri hans að bæta heimsmetið, og stóð það nú í 6.358
metrum.
Báðir þessir leiðangrar útheimtu háar fjárhæðir
og margar vinnandi hendur. Með styrkjum frá bíla-
framleiðendum og löngum undirbúningi heppnuðust
tilraunir þeirra við heimsmetið nær áfallalaust.
vildi bæta met á gömlum suzuki samurai
Gonzalo Bravo heitir ungur Sílemaður, skrifstofumaður að at-
vinnu, en jeppaáhugamaður frá unga aldri. Gonzalo fylgdist
með fréttum af leiðöngrunum
árið 2005 og fannst það skítt
að heimsmetið væri skráð á
einhverja útlendinga. Hann og
vinir hans höfðu þrætt fjall-
garða Andes á heimasmíðuð-
um torfærujeppum síðan þeir
höfðu aldur til og nú fanst
Gonzalo að einhver yrði að
taka í taumana. Ojos del Salado
væri síleskt fjall, ef heimsmetið
yrði sett á þessu fjalli ætti það
að vera sett af Sílemanni.
En Gonzalo var ekki auð-
kýfingur og ekki voru í boði
tugmilljóna styrkir til að gera
út slíkan leiðangur frá Síle. Hann átti þó gamlan Suzuki
Samurai-jeppa og ákvað að með útsjónarsemi ætti hann
kannski möguleika á að bæta met útlendinganna. Í byrjun
árs 2006 hóaði hann í nokkra félaga og hóf undirbúninginn.
Við tók þrotlaus vinna um kvöld og helgar í bílskúrnum
hjá Gonzalo. Hann átti nokkra áhugasama og fórnfúsa vini
sem lögðu hönd á plóginn. Bíllinn var þegar breyttur fyrir
torfæruakstur, með Toyota-hásingar, skriðgír og dráttarspili.
Auk þess hafði hann áður fengið örlítið stærri vél, 1,6 lítra úr
Suzuki Sidekick-bifreið.
Til að vega upp á móti þunnu loftinu í þessari miklu hæð