Kjarninn - 12.12.2013, Blaðsíða 71
31/33 kjarninn MaRKaðSMáL
verður ekki rakin hér. Þess í stað verður fjallað stuttlega um
aðferðafræði í kynningar- og markaðsmálum sem kallast
„content marketing“ á ensku, en þetta hugtak hefur verið
þýtt sem efnismarkaðssetning.
hvað er efnismarkaðssetning?
Efnismarkaðssetning snýst um að fyrirtæki búi til og
dreifi hagnýtu, skemmtilegu og áhugaverðu efni til skýrt
afmarkaðra markhópa sem fyrirtækið vill ná til. Efnis-
markaðssetning byggir á þeirri kenningu að með því að gefa
fólki hagnýtar upplýsingar á forsendum þess með áhuga-
verðum hætti muni það skila sér í aukinni sölu og langtíma-
tryggð við vörumerki til lengri tíma litið.
mikil vinna sem getur borgað sig til lengri tíma
Efnismarkaðssetning er langtímaverkefni sem þarf að vera
samhæft öðrum aðgerðum í markaðs- og kynningarmálum.
Hún byggir á því að fyrirtækið verði sjálfstæður útgefandi á
efni en reiði sig síður á á kaup á auglýsingum og umfjöllun
í fjölmiðlum. Til að fyrirbyggja misskilning er rétt að geta
þess að eitt útilokar ekki annað í þessum efnum. Það ætti þó
að vera markmiðið með efnismarkaðssetningu að fyrirtæki
komist í þá stöðu að eigin útgáfa geti með tíð og tíma komið í
staðinn fyrir dýrar auglýsingaherferðir að verulegu leyti.
0DUJLUP¶JXOHLNDUGUHLõQJXHIQLV
Efni sem fyrirtæki geta dreift til markhópa sinna getur
verið af ýmsu tagi. Þar má nefna leiðbeiningar eða fræðslu-
efni, dæmisögur (e. case studies), vídeó, blogg, vitnisburður
viðskiptavina, fréttabréf, myndir, myndrænt tölfræðiefni
(e. infographics) og jafnvel bækur. Efnismarkaðssetning er
gjarnan á öðrum nótum en hefðbundnar auglýsingar þó að
línan þarna á milli sé auðvitað óskýr í reynd.
ekki alveg það nýjasta í markaðssetningu
Efnismarkaðssetning er hvorki ný eða frumleg aðferða-
fræði í markaðsmálum. Um þarsíðustu aldamót dreifði