Kjarninn - 12.12.2013, Page 73

Kjarninn - 12.12.2013, Page 73
33/33 kjarninn MaRKaðSMáL Byrjum einfalt og gerum það vel Þegar þetta liggur allt fyrir er kjörið að gera sér grein fyrir þeirri þekkingu sem er til innan fyrirtækisins. Stundum (en þó ekki alltaf!) leynast vel ritfærir snillingar með brennandi áhuga og þekkingu á fagi sínu á vinnustöðum. Til dæmis er kjörið að fá þessa starfsmenn til að blogga reglulega á vef fyrirtækisins og deila færslum á samfélagsmiðlum. Einnig má bjóða viðskiptavinum að fá áskrift að bloggfærslum í tölvupósti. Ef vel tekst til má jafnvel „plögga“ góðum færslum í fjölmiðla. Gefist þetta vel má færa út kvíarnar í frekari útgáfu, til dæmis með því að búa til vídeó sem sett eru á Youtube og dreift á samfélagsmiðlum. 9­WDP­QI\ULUYHõQQ Markviss efnismarkaðssetning getur verið vítamínsprauta fyrir vefi fyrirtækja og getur bjargað þeim frá því að daga uppi sem staðnaðir og úreltir bæklingar. Það getur skilað mikilli breytingu til batnaðar ef horft er með gagnrýnum augum á vef fyrirtækisins og spurt hvort hann sé í alvöru að veita þeim sem hann á að þjóna gagnlegar upplýsingar eða virðisaukandi þjónustu. Ef svo er ekki þarf að einhenda sér í að búa til gott efni og gæta þess síðan að það úreldist ekki. Þolinmæði og úthald er lykill að árangri Ef tilfinningin er sú að þetta sé allt saman mikil vinna sem taki langan tíma að skila sér þá er það hárrétt. Efnis- markaðssetning er langtímaverkefni þar sem dropinn holar steininn og enginn ætti að fara af stað í hana nema vera tilbúinn að leggja á sig mikla vinnu til framtíðar. Uppskeran getur verið ríkuleg og skilað efstu sætum í niðurstöðum í leitarvélum, vinsældum á samfélagsmiðlum, vel sóttum og mikið notuðum vefjum og góðu sambandi við stóran hóp tryggra viðskiptavina.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.