Kjarninn - 06.03.2014, Side 19
05/06 stjórnmáL
viðskiptaráð ályktar
Stjórn Viðskiptaráðs Íslands ályktaði sérstaklega um þings-
ályktunartillögu Gunnars Braga á fundi sínum í gær, og segir
orðrétt í ályktuninni að hún telji „ekki rétt að slíta aðildar-
viðræðum við ESB á þessum tímapunkti“.
Þá er ítrekað í ályktuninni að stjórnvöld ættu að setja
málið á ís út kjörtímabilið, í takt við það sem Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð hefur lagt til, frekar en að draga
umsóknina formlega til baka. „Skynsamleg sáttaleið í þessu
erfiða máli væri að gera hlé á aðildarviðræðum við ESB til
loka kjörtímabilsins í stað þess að slíta þeim. Það er mat
stjórnar Viðskipta ráðs að sú leið myndi skapa grundvöll fyrir
stjórnvöld til að vinna að uppbyggingu efnahagslífsins næstu
þrjú ár í breiðari sátt við aðila vinnumarkaðarins og aðra
hagsmunaaðila en ella. Nálgun af þessu tagi væri ennfremur
í takt við markmið stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar
um aukinn samtakamátt og samvinnu í helstu verkefnum
þjóðfélagsins,“ segir í ályktuninni. Í henni segir enn fremur
að það sem skipti miklu máli sé að eyða óvissu um peninga-
málstefnu þjóðarinnar og það sé hægt að leiða fram skýra
valkosti með aðildarviðræðum við ESB.
mögulega Hægt að leggja esB-málið til Hliðar út kjörtímaBilið
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskólann á Akureyri, segir stjórnar flokkana,
Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk, eiga í erfið-
leikum með að ná fram tillögu um málefni sem
tengjast Evrópusambandinu sem víðtæk sátt geti
náðst um. Málið sé einfaldlega of umdeilt til þess.
„Ef stjórnarflokkarnir ætla að breyta um stefnu frá
því sem nú er finnst mér líklegast að mest sátt geti
náðst um að leggja málið einfaldlega til hliðar út
kjörtímabilið, líkt og Vinstri græn hafa lagt til, án
þess að draga umsóknina formlega til baka,“ segir
Grétar Þór. Hann segir þjóðaratkvæðagreiðslu um
áframhald viðræðna, í ljósi skýrrar afstöðu stjórnar-
flokkanna um að Íslandi sé betur borgið utan ESB,
geta leitt til erfiðrar stöðu pólitískt ef meirihluti
vilji halda áfram viðræðum, þar sem áframhald
viðræðna yrði þá á veikum grunni og án stuðnings
stjórnvalda.
Grétar Þór segir að það geti einnig spilað inn í
að stutt sé í kosningar á sveitarstjórnarstiginu, og
því þurfi stjórnarflokkarnir að halda vel á spilunum.
„Sé horft til þeirra kannana sem hafa verið gerðar á
sveitarstjórnarstiginu eru stjórnarflokkarnir í frekar
sterkri stöðu, sé horft til landsins alls. Samfylkingin
á hins vegar í vök að verjast víða. En landslagið
getur breyst á skömmum tíma.“