Kjarninn - 06.03.2014, Page 30
03/05 fótbOLti
væru meira og minna tapað fé og að íslenska ríkið ætlaði
sér ekki að borga skuldirnar. Pétur, sem talar hollensku
eftir að hafa gert garðinn frægan á hollenskri grundu á ferli
sínum, ekki síst með Feyenoord í Rotterdam, sagði stemmn-
inguna á vellinum þegar leikurinn fór fram hafa verið
spennuþrungna. Ekki síst á meðal hörðustu stuðningsmanna
hollenska liðsins í Rotterdam, en þar hefur löngum verið
harður kjarni fótboltabullna sem reglulega veldur upp þotum
og leiðindum á leikjum. Hjá þeim þarf nú yfirleitt ekki
undirliggjandi milliríkjadeilur til að berjast við lögregluna
og stuðningsmenn annarra liða, innan vallar sem utan.
sóknarbolti gegnum hollendingum? Ekki góð hugmynd
Ég hef mætt á alla heimaleiki íslenska karlalandsliðsins
undanfarin tæplega sex ár. Leikurinn gegn Hollandi 6. júní
2009 var í minningunni ágætis áminning um hversu frábæra
sóknarleikmenn Hollendingar
eiga. Eftir fyrri leikinn spennu-
þrungna í Hollandi lá fyrir að
Holland var of sterkt lið fyrir
Ísland. En eins og oft þegar litlu
liðin eru á heimavelli er stutt
í fífldirfskuna. Fyrir leikinn
sagði Ólafur Jóhannes son að
íslenska liðið ætlaði sér að gefa
allt í leikinn og reyna að spila
sóknarbolta gegn stjörnum
prýddu liði Hollendinga. Ég
hlakkaði mikið til leiksins, ekki
síst þar sem gamall félagi úr Völsungi var í byrjunarliðinu,
Pálmi Rafn Pálmason. Í stuttu máli fannst mér íslenska lands-
liðið ekki eiga minnsta möguleika gegn Hollandi í fyrri hálf-
leik. Sérstaklega var eimreið Hollendinga á vængjum beggja
megin svo til óstöðvandi. Öðru megin var Arjen Robben, einn
allra besti leikmaður Evrópu í dag, og hinum megin Robin
van Persie, sem hefur um árabil verið einn besti framherji
í heimi. Staðan í hálfleik var 1-0 en hún átti að vera minnst
ólafur jóhannesson
Þjálfari íslenska landsliðsins
lagði upp með sóknarleik
gegn stjörnum prýddu liði
Hollendinga.