Kjarninn - 06.03.2014, Qupperneq 76
03/04 pistiLL
getur verið erfitt að færa á það sönnur. Þar kemur til kasta
Óskars verðlaunanna sem afhent voru um síðustu helgi. Nú
klórar sér kannski einhver í hausnum, því afhending Óskars-
verðlaunanna er hvergi verðlögð – eða hvað?
Það má nefnilega líta á stuðla hjá veðbönkum sem verð-
lagningu á sigurlíkum mynda í mismunandi flokkum. Veð-
bankarnir hreyfa enda við stuðlunum í takti við það hversu
margir veðja á hverja mynd, til þess að tryggja að tap þeirra
sem veðja rangt nægi örugglega til þess að greiða út vinn-
inga til þeirra sem veðja rétt. Stuðlarnir ættu því á endanum
að endurspegla sameigin legt mat allra fjárhættuspilara á
sigurlíkum myndanna.
spámarkaðurinn
Til þess að ljá veðmöngurum örlítið virðulegri blæ hafa
hagfræðingar tekið upp á því að kalla veðmálastarfsemi
„spámarkaði“ (e. predictive markets), en einn þeirra, David
Rothschild, tók upp á því að kanna hversu
vel þessum spámörkuðum tókst að verð-
leggja sigurlíkurnar á Óskarsverðlauna-
hátíðinni 2013. Í ljós kom að spámarkaðirnir,
þ.e. stuðlar veðbanka, höfðu almennt mun
betra forspárgildi en t.d. mat sérfræðinga
eða tölfræðilíkön sem byggðu á frumþáttum
eins og tekjum myndanna eða verðlauna-
fjölda þeirra.
Með þessa þekkingu að vopni notaði
Rothschild stuðla veðbanka til að reikna
líkur á sigri kvikmynda í öllum 24 flokkunum
fyrir verðlaunaafhendinguna sem fram fór á sunnudag. Það
er skemmst frá því að segja að með fjöldaspekina í farteskinu
tókst honum að spá rétt fyrir um sigurmyndina í 21 flokki, þar
af öllum aðalflokkunum, en einu flokkarnir sem hann klikk-
aði á voru bestu leikna og teiknaða stuttmynd, og heimildar-
mynd í fullri lengd. Ekki var nóg með það, heldur mat hann
sigur líkurnar að meðaltali um 85%, svo að 21 rétt ágiskun af
24 bendir til þess að líkurnar hafi verið nokkuð rétt metnar.
„Í ljós kom að
spámarkaðirnir, þ.e.
stuðlar veðbanka,
höfðu almennt
mun betra forspár-
gildi en t.d. mat
sérfræðinga eða
tölfræðilíkön ...“