Kjarninn - 06.03.2014, Qupperneq 50
02/11 viðtaL
v
erkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands eru
mörg og ærin. Hún er kynningar- og upp-
lýsingamiðstöð fyrir íslenska hönnun hér
heima og erlendis, en meginhlutverk hennar
er að efla skilning þjóðarinnar á mikilvægi
hönnunar fyrir samfélagið og íslenskt efnahagslíf og benda
á verðmætasköpunina sem felst í íslenskri hönnun fyrir
þjóðfélagið.
Hönnunarmiðstöð Íslands er gert að mynda tengsl á milli
greina og hvetja til samstarfs og umræðu, stuðla að auknum
mælingum og rannsóknarvinnu varðandi umfang og vöxt
hönnunargeirans og ýta undir fræðslu í markaðsmálum,
verkefnastjórnun og framleiðslu. Þá stendur miðstöðin fyrir
fyrirlestrum, sýningum og ráðstefnum og HönnunarMars,
sem fer fram dagana 27. til 30. mars næstkomandi, en hátíðin
er langstærsta kynningarverkefni Hönnunarmiðstöðvar
Íslands ár hvert.
kemur að mótun hönnunarstefnu stjórnvalda
Miðstöðin á einnig þátt í því að móta svokallaða hönnunar-
stefnu ásamt stjórnvöldum. Hugmyndin á bak við hönnunar-
stefnuna er ekki ný af nálinni, því fleiri þjóðir hafa mark-
að sér sambærilega stefnu í hönnunarmálum, svo sem
Finnland, Bretland, Danmörk, Singapúr og Suður-Kórea.
Núgildandi hönnunarstefna stjórnvalda hér á landi, sem
gildir til ársins 2018, byggir á tillögum frá stýrihópi sem
Katrín Júlíusdóttir, þáverandi iðnaðarráðherra, skipaði í
samstarfi við Katrínu Jakobsdóttur, þáverandi mennta- og
menningarmála ráðherra, í ársbyrjun 2011. Stýrihópinn
skipuðu fulltrúar frá áðurnefndum ráðherrum, Sigurður
Þorsteinsson iðn hönnuður, sem var formaður stýrihópsins
og Jóhannes Þórðarson arkitekt, ásamt Höllu Helgadóttur,
framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Halla er
grafískur hönnuður að mennt, en hún hefur gegnt starfinu
frá því að Hönnunarmiðstöð var stofnuð árið 2008.
Í niðurstöðum stýrihópsins er vitnað í skýrslu Evrópu-
sambandsins, Design as a driver of user-centred innovation
viðtaL
Ægir Þór Eysteinsson