Kjarninn - 06.03.2014, Side 32

Kjarninn - 06.03.2014, Side 32
05/05 fótbOLti Ég spái því að Ísland komi á óvart og berjast um annað sætið í riðlinum. Á pappírunum eru allir andstæðingar Íslands lítið síðri, líka Kasakstan. En það býr mikið í íslenska liðinu og það mun mæta til leiks í undankeppnina reynslunni ríkara eftir ótrúlega frammistöðu í undankeppni HM, þar sem Króatar reyndust of stór biti. Engin innlánasöfnun að trufla Við feðgar gerum okkur yfirleitt að leik að giska á hver verði maður leiksins. Heimir Andri nefnir alltaf tvo menn, Gylfa Sigurðsson og Eið Smára Guðjohnsen. Hann ber ævintýralega virðingu fyrir þeim báðum og getur ekki til þess hugsað að sá síðarnefndi sé nálægt því að ljúka ferli sínum með lands- liðinu. Ég veðja yfirleitt á Kolbein Sigþórsson. Mér finnst leikur Íslands oft standa og falla með því hvernig gengur að koma honum í takt við leikinn þar sem varnarmenn þurfa að hafa mikið fyrir því að glíma við hann. Hvernig sem undankeppni EM fer er það huggun harmi gegn að glórulaus innlánasöfnun íslenskra banka í útlöndum, og hrun bankakerfisins, mun mjög ólíklega trufla einbeitingu leikmanna í þetta skiptið. Smelltu hér til að sjá helstu atvik úr leik Íslands og Hollands 11. október 2008

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.