Kjarninn - 06.03.2014, Page 57

Kjarninn - 06.03.2014, Page 57
09/11 viðtaL móðgandi nálgun „Þessi nálgun er á stundum móðgandi og jafnvel niður- lægjandi. Í mínu starfi get ég ómögulega hvatt til þess að hönnuðir geri eitthvað án þess að fá greitt fyrir það. Ef ég gerði það ætti að reka mig strax. Ríkið, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki eiga að sjálfsögðu að greiða eðlilegt verð fyrir hönnun og auðvitað þjónustu allra listgreina alveg eins og hvað annað sem keypt er. Ef þessir aðilar eru að fá þjónustu frá þessum aðilum eiga þeir ekki að biðja um hana ókeypis, það er bara vandræðalegt. Þessi hópur getur gefið vinnu sína í góð málefni og hjálparstarf eins og aðrar greinar.“ Því er oft haldið á lofti að bágstödd staða ríkissjóðs gefi ekki svigrúm til þess að verja fé í hönnun á tilteknum verk- efnum. Halla segir þetta af og frá. „Að fjárfesta í hönnun er ekki aukinn kostnaður eins og rannsóknir sýna. Þvert á móti geta verkefnin orðið hagkvæmari, betri og notendavænni. Það er skammgóður vermir að spara á hönnunarliðum enda er kostnaðurinn við hönnun oftast innan við 20% af kostnaði við heildarframkvæmd verkefna. Að spara þar getur verið dýrkeypt. Þetta sýnir skilningsleysi á þeim gæðum sem hönnuðir og arkitektar geta komið með að borðinu. Þar að auki verðum við auðvitað að stuðla að því að hér á Íslandi sé jarðvegur fyrir ólík störf og nýútskrifuðum hönnuðum sé gert kleift að vinna við það sem þeir menntuðu sig í. Við erum að tala um mikilvægi þess að fjárfesta í grein sem gefur af sér, og þannig er hún ekkert öðruvísi en aðrar atvinnu- greinar. Til að mynda erlendir ferðamenn, þeir eru ekkert síður að koma hingað til að upplifa íslenska list, menningu, arkitektúr og annað sem einkennir okkur sem þjóð. Ég finn fyrir skilningi núverandi stjórnvalda að styðja við hönnun í orði, en ég á eftir að sjá hvort stuðningurinn er líka á borði.” tala um skapandi greinar til að slá um sig Halla segir stjórnmálamenn oft og tíðum slá um sig með því að tala um mikilvægi skapandi greina. „Það er ágætt og við höfum tekið virkan þátt í umræðunni um skapandi

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.