Kjarninn - 06.03.2014, Page 58

Kjarninn - 06.03.2014, Page 58
10/11 viðtaL greinar og finnst mikilvægt að vinna að því að móta þennan nýja geira. Margt sameinar greinarnar og þar eigum við að vinna saman sem heild, svo sem að hagrænum mælingum, framtíðar stefnumótun og fleira. En til að það sé raunverulega hægt verður fyrst að styrkja stoðir og innviði hverrar greinar fyrir sig. Skapandi greinar eru stórt svið sem spannar allt frá hálistum yfir í hrein viðskipti. Þetta er ekki einn sameinaður og fullmótaður hópur sem hægt er að nálgast þannig. Þetta er verkefni sem tekur tíma að mótast og það þarf að byrja á byrjuninni með því að styrkja grunninn og vanda til verka.” Helstu áskoranir Hönnunarmiðstöðvar Íslands næstu misserin eru að sögn Höllu innleiðing hönnunar stefnunnar, að styrkja hönnunarsjóðinn og tryggja að hann verði starf ræktur áfram og gera rekstrarsamning til lengri tíma við stjórnvöld um Hönnunarmiðstöð Íslands. Um- ræddur hönnunarsjóður veitir styrki til verkefna á sviði hönnun- ar og arkitektúrs, þróunar og rannsókna, verkefna og mark- aðsstarfs. Sjóðurinn heyrir undir Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneyti og tekjustofn hans er framlag sem Alþingi ákveður á fjárlögum. Framlag ríkissjóðs til sjóðsins á síðasta ári hljóðaði upp á 45 milljónir króna. Tuttugu og níu verkefni hlutu styrk í fyrra, upp á 41 milljón króna, en rúmlega 200 umsóknir bárust sjóðnum þar sem sótt var um yfir 400 milljónir króna. Hönnunarmiðstöð hefur bent á að upphæðin í fyrra dugi hvergi nærri til að sinna þörfum hönnunar samfélagsins. styrkja þarf hönnunarsjóð Hönnunarmiðstöð Íslands hefur bent á að meira fjár- magn þurfi til frá ríkisvaldinu í hönnunarsjóð svo hann sé ekki andvana fæddur.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.