Kjarninn - 06.03.2014, Page 96

Kjarninn - 06.03.2014, Page 96
02/03 kjaftæði í fjölmiðla og kallar viðtalið skrítið, eins og allt annað sem hann hefur ekki nauðbeygt eftir vilja sínum. Undantekning að hún standist staðreyndatékk Formaður fjárlaganefndar segir bara tóma vitleysu. Hún er hættuleg. Það heyrir í alvöru til undantekninga ef hún segir eitthvað sem stenst staðreyndatékk – þær undantekningar eru yfirleitt hótanir. Hún má auðvitað hóta eins og hún vill, en líklega er leitun að jafn ófágaðri framkomu. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru lygarar. Málið snýst ekki bara um að þeir hafi sagt að áfram- haldandi viðræður við ESB ættu að vera bornar undir þjóðina, heldur hvernig þeir sögðu að áframhaldandi viðræður við ESB ættu að vera bornar undir þjóðina. Ef ein- hver nákominn mér myndi ljúga að mér að sömu innlifun færi ég að skæla. Það er alltaf sárt fyrir mann að kom- ast að því að sá sem maður hélt með er óheiðar legur. Ekki nema maður sé hluti af svikunum. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Ís- land vera sjálfstæðari þjóð en Þýskaland. Það er líklega rétt hjá honum. Að sama skapi er Norður-Kórea mun sjálfstæðari þjóð en Ísland. Háttvirtum þingmanni er vinsamlegast bent á bókina Sjálfstætt fólk. við viljum vera með skemmtilegu löndunum Forseti landsins keppist við að sleikja upp illmenni heims- ins og reynir að koma lítilli eyþjóð í norðri í stjórnmála- og efnahags samband við stórþjóðir sem traðka á mann- réttindum og eiga nákvæmlega enga menningarlega samleið með íslensku þjóðinni. Svo er talað um aukið samstarf við Grænland og Færeyjar. Afsakið, en hvað höfum við gert til að eiga það skilið? Af hverju megum við ekki vera með hinum skemmtilegu löndunum? Af hverju tölum við um ESB eins og það fjalli bara „Í hvert skipti sem hann opnar á sér munninn í við tölum líður mér eins og ég sé í flugvél og flugstjórinn hafi tilkynnt það í hljóð- nemann að hann kunni ekki á vélina.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.