Kjarninn - 01.05.2014, Síða 12

Kjarninn - 01.05.2014, Síða 12
03/07 HEilbrigðiSmál grunnskólabörn hafa aðgang að ákveðinni sálfræðiþjónustu hjá sérfræðiþjónustu sveitarfélaganna. Þá bjóða Sjúkratryggingar Íslands sálfræðingum ramma- samning, um sálfræðiþjónustu við börn sem vísað er frá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Þroska- og hegð- unarstöð heilsugæslunnar og Greiningarstöð, en sárafáir sál- fræðingar heyra undir þann samning sökum þess að greiðsl- ur Sjúkratrygginga fyrir sálfræðiþjónustu eru mun lægri en verðskrá flestra sálfræðinga. Algengt verð fyrir greiningar- eða meðferðarviðtal hjá sálfræðingi er um 11-13.000 krónur. Sálfræðingar starfa á samkepnismarkaði og er ekki heimilt að samræma verðskrár. Ofangreint er hins vegar ekki í boði fyrir almenning. Einstaklingur sem leitar á heilsugæslu vegna sálrænna erfiðleika, lætur sér oft duga að fá uppáskrifuð lyf frekar en að leita sér aðstoðar hjá sálfræðingi vegna kostnaðar. alvarleg staða Eins og áður segir hefur Sálfræðingafélag Íslands ítrekað bent á þetta ósamræmi í heilbrigðis kerfinu á fundum með ráðamönnum, að sálfræði þjónusta sé ekki niðurgreidd ólíkt annarri heilbrigðis þjónustu. Hrund Þrándardóttir formaður Sálfræðingafélags Íslands segir stöðu mála skjóta ansi skökku við, og hún stríði bein- línis gegn sérstökum klínískum leiðbeiningum samþykktum af Landlæknisembættinu um hvernig skuli meðhöndla þunglyndi og kvíða. Í umræddum leiðbeiningum, sem gefnar voru út af Landspítalanum í ágúst árið 2011, kemur fram að stærstur hluti þeirra sem leita á göngudeild geðdeildar Landspítalans komi þangað vegna fyrrgreindra geðraskana. Skjalið inniheldur leiðbeiningar um verklag til stuðnings starfsfólki í heilbrigðisþjónustu við ákvarðanatöku við tilteknar aðstæður. Þær byggja á bestu þekkingu á hverjum tíma og eru gagnreyndar. Í leiðbeiningunum er mikilvægi hugrænnar atferlismeðferðar undirstrikað. „Einstaklingur sem leitar á heilsugæslu vegna sál- rænna erfiðleika, lætur sér oft duga að fá uppáskrifuð lyf frekar en að leita sér aðstoðar hjá sálfræðingi vegna kostnaðar. “

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.