Kjarninn - 01.05.2014, Blaðsíða 48
rEykjaVík Lokaspretturinn í borgarstjórnarkosningunum fram undan
Engar kannanir gerðar
síðustu tvær vikur
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar, doktors í stærðfræði, hefur
ekkert breyst frá því fyrir páska, enda hafa engar nýjar skoðanakannanir verið
framkvæmdar síðan þá. Viðbúið er að niðurstöður úr nokkrum slíkum muni
detta í hús á næstunni og að styttra líði milli kannana eftir því sem nær dregur
kosningadeginum 31. maí.
Framboðin eru líka hvert af öðru farin að kynna áherslur sínar og helstu
stefnumál. Búist er við því að Björt framtíð opinberi stefnu sína í dag, 1. maí,
og Framsóknarflokkurinn kynnti loks oddvita síðastliðið þriðjudagskvöld. Þá
kom einnig í ljós að Framsóknarflokkurinn ætlar að bjóða fram í sameiningu
við þá sem setja veru flugvallar í Vatnsmýri á oddinn og með því opinberast
helsta stefnumál framboðsins í kosningunum sem fram undan eru. Áhugavert
verður að sjá hvort vandræðagangur flokksins muni hífa fylgi hans enn meira
niður eða hvort hörð afstaða í flugvallarmálinu rífi fylgið upp úr þeim djúpa
öldudal sem það hefur mælst í fram til þessa. þsj
aðferðin
Forsendur spárinnar
Kosningaspa.is sameinar
niðurstöður skoðanakannana
við útreikning á fylgi flokka.
Hverri könnun er gefið vægi
sem ákvarðast af þremur
þáttum: Hvar og hvenær
könnunin er framkvæmd og
hversu margir taka þátt. Því
er spáin vegið meðaltal af
könnunum. Nánar
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
fylgi framboða til borgarstjórnar í reykjavík
Samkvæmt nýjustu kosningaspá, gerðri 14. apríl 2014
25,0%
2,8%
24,8%
27,1%
7,5%
2,5%
0,3%
10,0%
A B D S VT Þ
01/02 Kosningaspá.is kjarninn 1. maí 2014