Kjarninn - 01.05.2014, Síða 36

Kjarninn - 01.05.2014, Síða 36
04/07 dómSmál Enn eitt túngöturuglið Ítarlega er fjallað um málið í bókinni „Íslands ehf – Auðmenn og áhrif eftir hrun“, eftir greinarhöfund og Magnús Halldórs- son, sem kom út í ágúst í fyrra. Þar segir: „Í hádeginu laugardaginn eftir, þann 1. nóvember 2008, var stjórnarfundurinn síðan haldinn. Fyrir hann hittust allir stjórnarmenn 365 utan Árna Haukssonar á fundi fyrir fundinn. Ari [Edwald] hafði greinilega komið afstöðu Árna á framfæri við hina stjórnarmennina. Fyrri fundurinn fór fram í hliðarherbergi í höfuðstöðvum 365. Hann sátu stjórnar- formaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson, varaformaðurinn Pálmi Haraldsson, Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ármann og forstjórinn Ari Edwald. Að loknum þeim fundi gengu stjórnar menn inn á stjórnarfundinn. Pálmi Haraldsson kom fyrstur inn í fundarherbergið og muldraði með sér eitthvað sem hljómaði eins og að þetta væri enn eitt Túngöturuglið sem væri í uppsiglingu, en höfuðstöðvar Baugs voru á þeim tíma við Túngötu í Reykjavík. Einhverjir töldu, á grundvelli hinnar muldruðu afstöðu, að Pálmi myndi beita sér gegn sölunni á fjölmiðlunum. Jón Ásgeir setti síðan stjórnarfundinn sem stjórnar- formaður og útskýrði dagskrá hans. Í kjölfarið gerði hann grein fyrir því að hann væri vanhæfur til að fjalla um málið, enda bæði seljandi og kaupandi fjölmiðlanna. Pálmi tók við stjórn fundarins, tilkynnti að fyrir honum lægi tillaga um sölu á fjölmiðlum 365 til Rauðsólar, félags Jóns Ásgeirs. Hann taldi tilboðið vera mjög gott og lagði til að því yrði tekið. Þorsteinn og Magnús tóku undir það en Árni greiddi einn at- kvæði á móti, lét Hildi Sverrisdóttur bóka mótmæli í fundar- gerð og lagði að lokum fram bréf þar sem hann tilkynnti um úrsögn sína úr stjórninni.“ Hámarka hagsmuni jóns ásgeirs „Það voru mjög gildar ástæður fyrir stjórnarmenn 365 að hugsa sig alvarlega um áður en þeir samþykktu söluna á 365 til Rauðsólar. Í fyrsta lagi voru hundruð hluthafa í 365 á þessum tíma. Sú lausn sem lögð var til, og síðan framkvæmd,

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.