Kjarninn - 01.05.2014, Side 38

Kjarninn - 01.05.2014, Side 38
06/07 dómSmál Hagar lánuðu „En hvaða komu peningarnir? Enn hefur ekki verið upplýst hvaðan hluti þeirra kom, en þorri þeirra, 810 milljónir króna, kom frá smásölurisanum Högum. Auk þess hefur komið í ljós að aðrir fjárfestar, með miklar tengingar við Jón Ásgeir, komu að kaupunum. Á meðal þeirra var Pálmi Haraldsson og nokkrir starfsmenn 365. Til útskýringar þá voru Hagar á þessum tíma að öllu leyti veðsettir Kaupþingi vegna fléttu sem ráðist hafði verið í vorið 2008. ... Þrátt fyrir það var félagið látið ráðstafa 810 milljónum króna til Jóns Ásgeirs sem láns til tveggja vikna svo hann geti keypt fjölmiðla út úr gjaldþrota 365. Kaupin voru fjármögnuð með handbæru fé frá rekstri, sem þýðir á mannamáli reiðufé af bankareikningi Haga. ... Þegar lánstím- inn var liðinn var lengt í láninu en að endingu var tæpur helmingur þess, 393 milljónir króna, greiddur til baka í janúar 2009. Hinn helmingurinn hefur aldrei verið greiddur. Í skráningarlýsingu Haga sagði að sá helmingur hefði verið seldur til 365 miðla á 100 milljónir króna. Þar var ekki um raunverulega peningagreiðslu að ræða heldur fengu Hagar, sem er einn stærsti auglýsandi á Íslandi, auglýsingainneign hjá 365 miðlum sem greiðslu fyrir hlutinn. Þannig greiddi Jón Ásgeir í raun ekki fyrir hann heldur fyrirtækin sem hann keypti fyrir lánið.“ tap kröfuhafa 3,7 milljarðar króna Nafni gamla 365 var breytt í Íslensk afþreying ehf. og félagið sett í þrot ... Þegar skipti fóru fram á búinu kom einnig í ljós að stjórnendur nýja og gamla 365 höfðu ákveðið að veita Rauðsól afslátt af sölu á hlutunum þegar endurskoðun fór fram á kaupverði þeirra. Sá afsláttur er talinn hafa verið veittur vegna þess að Jóni Ásgeiri tókst ekki að ná saman hærri upphæð en 1.350 milljónum króna til að kaupa miðlana. Skiptastjóri þrotabúsins taldi að um kláran gjafa gerning væri að ræða, enda var Jón Ásgeir stjórnarformaður í félaginu sem var að selja félagi í hans eigu fjölmiðlana, sömu

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.