Kjarninn - 01.05.2014, Page 56
02/02 álit
ástæður en sú helsta sem talar mest til réttlætiskenndar
minnar er sú staðreynd að hvert sem hann verður fluttur
(já, líka til Keflavíkur) mun það alltaf kosta tugi milljarða,
eða sem nemur eins og einu hátæknisjúkrahúsi. Ég vil
persónulega að þjóðin nýti þessa peninga í annað og þá helst
velferðar- og menntamál. Þetta er ekki prinsippmál fyrir
mér heldur skoðun sem ég er nýbúin að mynda mér vegna
ákveðinna röksemda í málinu. Ef okkur hlotnast mikill pen-
ingur og verðum búin að sinna öllum þeim velferðarmálum
sem nauðsynlegt er að sinna má alveg færa
flugvöllinn fyrir mér, endilega bara.
Hins vegar hef ég fundið fyrir ansi magn-
aðri andúð og ómálefnalegum úthrópunum
vegna þessarar skoðunar minnar. Til dæmis
er sagt að ég sé „bara eins og Guðni Ágústs-
son“ eða að ég sé að stuðla að aukinni mengun
með notkun einkabílsins og að ég sé að taka
undir málflutning sjálfstæðismanna. Það
finnst mér ofsalega ómálefnlegt, sérstaklega þegar það er gert
án þess að spyrjast fyrir um rök sem ég hef fyrir skoðun minni.
Mér finnst það líka svo sorglegt og bera vott um flokkadrætti
sem einkenna íslenska pólitík. Maður er settur í lið og manni
gerðar upp skoðanir á ýmsum málum sem tilheyra „hinu
liðinu“. Mér finnst þetta eins og einhver trúarbrögð þar sem
maður velur eitt ,,lið“ og fylgir öllum þeim kennisetningum
sem tilheyra því. Ég nenni ekki að taka þátt í því.
Ég vil tala fyrir ákveðnum málefnum sem eru mér mikil-
væg; réttlæti og lýðræði eru þar kjarnahugtök, einnig mann-
úð og almannahagsmunir. Ég er líka umhverfisverndarsinni
í hjarta mínu, þar sem ég er meðvituð um þá staðreynd að án
jarðarinnar gerum við ekki neitt, bara alls ekki neitt. Þetta
er líka ástæðan fyrir því að ég valdi Dögun sem flokk til
vinna fyrir, því hann tekur ekki stöðu með neinu liði heldur
málefnum eingöngu sem stuðla að réttlæti fyrir almenning.
Hann skilgreinir sig hvorki til hægri né vinstri. Dögun er
fjölmenningarlegur flokkur sem virðir öll trúarbrögð, ekki
bara einhver ein sem kallast „þétting byggðar“.
„Ég er hins vegar
líka hlynnt því að
halda flugvellinum
í Vatnsmýrinni
eins og málin
standa nú.“