Kjarninn - 01.05.2014, Page 71
01/01 markaðSmál
01/01 MarkaðsMál kjarninn 1. maí 2014
bEint í mark
1¼IDUDVWMµUQP£ODúRNNDUQLUD²KHUMD£NMµVHQGXUPH²NRVQLQJD£Uµ²UL¯
aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 31. maí. Rifjum upp gamlan kosningaáróður.
uk labour party
Verkamannaflokkurinn í Bretlandi 1997
Tony Blair leiddi flokkinn sinn undir New Labour-stefnunni til
stórsigurs í kosningunum 1997. Herferðin, sem virkar nú frekar
hallærisleg, miðaði inn á ungt fólk. Ljóst er að hún skilaði sínu.
We are better than that
Kosningar til landbúnaðarnefndar í Alabama 2010
Dale Peterson varð að internetundri með auglýsingum sínum fyrir
þessar kosningar. Þar talaði hann hart, reið hesti og sveiflaði riffli.
Þeir tilburðir dugðu ekki til. Peterson náði ekki kjöri.
growing together
Stuðningur við stækkun ESB 2012
Evrópusambandið eyddi formúu í að gera þessa auglýsingu, sem var
ætlað að ýta undir skilning á útþenslustefnu sambandsins. Draga
þurfti auglýsinguna til baka vegna þess að hún þótti rasísk.
jfk
Kosningabarátta Kennedy í Bandaríkjunum 1960
John F. Kennedy þótti brjóta blað með þessari sjónvarpsauglýsingu
sem hvatti kjósendur til að kjósa hann sem forseta með hressum
myndskeiðum og grípandi stefi.
peace, little girl
Kosningabarátta Johnsons í Bandaríkjunum 1964
„Það er of mikið undir,“ sögðu stuðningsmenn Lyndon B. Johnson í
kosningabaráttu hans. Sterk tákn um framtíð og yfirvofandi styrjöld
voru notuð til að sannfæra kjósendur. Johnson vann yfirburðasigur.